Framboðslisti VG samþykktur í dag
Framboðslisti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fyrir kosningarnar til bæjarstjórnar Akureyrar í maí var samþykktur á félagsfundi í dag.
„Listinn er skipaður mjög öflugu fólki sem er tilbúið til að vinna að hugsjónum okkar og gera bæinn betri,“ segir Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir sem hefur setið í bæjarstjórn Akureyrar í fjögur ár fyrir hönd VG og verður áfram í efsta sæti listans. Jana Salóme segist mjög spennt fyrir kosningunum og afar ánægð með að vinstra fólk í sveitarfélaginu sameinist undir merki VG.
„Fólkið á listanum er góð blanda af reynsluboltum og fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í stjórnmálum og verður mikill fengur fyrir sveitarfélagið okkar að fá svo öflugt hugsjónafólk til starfa í bæjarstjórn og nefndarstarfi,“ segir í tilkynningu frá VG.
Listinn er sem hér segir:
- Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, bæjarfulltrúi
- Stefán Oddur Hrafnsson, meistaranemi í kennslufræðum
- Ásrún Ýr Gestsdóttir, athafnakona
- Sigtryggur Ellertsson, vistvænn verslunareigandi
- Herdís Júlía Júlíusdóttir, iðjuþjálfi
- Erlendur Steinar Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur
- Sif Jóhannesar Ástudóttir, þjóðfræðingur
- Jóhannes Árnason, framhaldsskólakennari
- Harpa Guðbrandsdóttir, verkakona
- Elvar Freyr Fossdal Sigfússon, nemi og lagerstarfsmaður
- Anna Sigríður Jónsdóttir, félagsráðgjafi
- Mikael Snær Gíslason, líftækninemi
- Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir, verkefnastjóri á Amtsbókasafninu á Akureyri
- Davíð Örvar Hansson, teymisstjóri hjá Náttúruverndarstofnun
- Inga Elísabet Vésteinsdóttir, landfræðingur
- Bragi Guðmundsson, fyrrverandi prófessor
- Arnfríður Kjartansdóttir, sálfræðingur
- Angantýr Ómar Ásgeirsson, kennaranemi
- Dýrleif Skjóldal, leikskólakennari og sundþjálfari
- Guðmundur Ármann Sigurjónsson, myndlistamaður og -kennari
- Hannes Sigurðsson, lagerstarfsmaður
- Kristín Sigfúsdóttir, f.v. framhaldsskólakennari og bæjarfulltrúi
