Fara í efni
Fréttir

Fótboltaleikir vinnast á grasi, ekki á pappír

Ægismenn fagna síðara markinu gegn KA í dag. Nikola Kristinn Stojanovic, fyrir miðri mynd, skallaði þá knöttinn í mark. Harley Willard, annar frá vinstri, gerði fyrra markið. Myndir: Ármann Hinrik

KA-menn urðu í öðru sæti Bestu deildarinnar í knattspyrnu árið 2022 en þar fyrir utan hafa helstu gleðistundir þeirra undanfarin misseri verið í bikarkeppninni. Gleðin náði hámarki haustið 2024 þegar KA varð bikarmeistari í fyrsta skipti í sögu félagsins, fjöldann dreymir vitaskuld um að upplifa augnablik sem það á ný en von um slíkt ævintýri í ár varð að engu í dag þegar liðið tapaði 2:1 fyrir Ægi frá Þorlákshöfn á heimavelli. 

Þegar dregið var í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar voru KA-menn eðlilega taldir hafa dottið í lukkupottinn. Ægir er nýliði í Lengjudeildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins og þegar liðin mættust í dag á Greifavelli KA var tölfræðin sannarlega ekki gestunum í hag. Ægir hefur tapað öllum þremur leikjunum í Lengjudeildinni til þessa. En sá þekkti frasi að allt geti gerst í íþróttum átti vel við að þessu sinni.


FYRRA MARK ÆGIS
Harley Bryn Willard (22) skoraði með hnitmiðuðu skoti úr miðjum vítateignum á 17. mínútu eftir vandræðagang í vörn KA. Willard, sem lék með KA 2023 og 2024, gaf í skyn að hann vildi ekki fagna markinu ...


Tengingar lykilmanna Ægis við Akureyri eru með nokkrum ólíkindum:

  • Harley Bryn Willard gerði fyrra mark Ægis í dag. Hann lék með Þór 2022 og síðan með KA 2023 og 2024. Hann varð bikarmeistari með KA seinna árið. Lék þá síðustu 10 mínútur úrslitaleiksins gegn Víkingi.
  • Nikola Kristinn Stojanovic sem gerði seinna mark Ægis er uppalinn Þórsari. Hann lék síðast með meistaraflokki félagsins sumarið 2023.
  • Nenad Zivanovic þjálfari Ægis lék með Þór sumarið 2010.
  • Ómar Castaldo Einarsson markvörður Ægis var í herbúðum Þórs 2023. Hann tók ekki þátt í neinum deildarleik en stóð í markinu í tveimur bikarleikjum, 3:1 sigri á Leikni úr Reykjavík og 2:1 fyrir Víkingi (sem varð bikarmeistari). Nikola Kristinn Stojanovic tók einnig þátt í þessum tveimur bikarleikjum með Þór.

Það kann að hljóma ótrúlega en sigur Ægis í dag var ekki ósanngjarn. Frammistaða KA-liðsins var einfaldlega óviðunandi, mörkin hefðu vissulega getað orðið fleiri því boltinn hafnaði þrisvar í þverslá Ægismanna, en gestirnir fengu líka tækifæri til að skora meira.

Sé hugarfar allra ekki rétt er voðinn vís. Það er gömul saga og ný að þetta verði sérstaklega að hafa í huga þegar leikið er við „lítil“ lið í í bikarkeppni; andstæðingurinn hefur þá í raun engu að tapa og næsta víst er að hann mætir fullur eldmóðs til leiks, staðráðinn í að berjast til síðasta blóðdropa.

Ef leikmenn sem eiga að spila stórt hlutverk í liðsíþrótt eru ekki tilbúnir að leggja sig fram af fremsta megni – strax frá fyrstu mínútu – er það óboðlegt og viðkomandi verða einfaldlega að gyrða sig í brók. Ekkert hefur hingað til gerst af sjálfu sér og mun aldrei gera.


SEINNA MARK ÆGIS
Þórsarinn Nikola Kristinn Stojanovic (lengst til vinstri á neðri myndinni) kom Ægi í 2:0 á 23 mínútu. Hann skallaði boltann í bláhornið úr miðjum vítateig eftir sendingu utan af hægri kanti.


KA MINNKAR MUNINN
Jakob Héðinn Róbertsson, lengst til hægri, horfir á eftir boltanum í marki Ægis. Danijel Dejan Djuric sendi inn á teig og Jakob skallaði knöttinn laglega í netið. Hálftími var liðinn af leiknum þegar þetta gerðist.


KA-menn sóttu stíft að marki gestanna á lokakafla fyrri hálfleiks og fengu þá tvö góð færi til að skora. Fyrst skallaði Hallgrímur Mar Steingrímsson boltann í þverslá eftir fyrirgjöf og síðan þrumaði Oliver Heiðarsson boltanum í þverslána og niður. Á síðustu andartökum leiksins lenti boltinn þriðja sinni í þverslá, Sveinn Margeir Hauksson skallaði þá að marki Ægismanna en boltinn lengi ofan á slánni.


Pappírinn og grasið

Sá frægi enski knattspyrnustjóri Brian Clough var kunnur fyrir óvenjuleg og skondin tilsvör. Einhverju sinni nefndi blaðamaður að lið Cloughs væri mun betra á pappírnum en næsti andstæðingur og mun hann þá hafa svarað eitthvað á þá leið að það væri hárrétt, en þannig vildi reyndar til að fótboltaleikir færu ekki fram á pappír heldur á grasi. Þetta er nauðsynlegt að hafa alltaf í huga.

Leikskýrslan á vef KSÍ