Fara í efni
Fréttir

Tveir sigrar í röð og KA komið upp í 6. sæti

Valdimar Logi Sævarsson, lengst til hægri, glaður í bragði eftir seinna mark KA; hann átti fasta sendingu inn á markteig ÍBV og varnarmaður varð fyrir því óláni að sparka boltanum í netið. Myndir: Ármann Hinrik
KA vann ÍBV 2:0 á heimavelli í dag í sjöttu umferð Bestu deildar karla, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þetta var annar sigur KA-manna í röð eftir erfiða byrjun, þeir hafa nú sjö stig að loknum sex leikjum og fóru í dag upp í sjötta sæti. ÍBV er neðst með eitt stig, liðið gerði jafntefi I fyrstu umferðinni en hefur nú tapað fimm í röð.
 
KA hafði tapað fyrstu þremur heimaleikjunum í deildinni, fyrir Stjörnunni, Víkingi og Keflavík, þannig að gríðarlega mikilvægt var að sigra Eyjamenn í dag. Stigin þrjú voru í raun það eina sem skipti máli. Leikurinn var heldur tilþrifalítill og ljóst að KA-menn geta spilað mun betur en í dag en sú breyting var ánægjuleg frá síðasta heimaleik, tapi gegn Keflvíkingum, að allir leikmenn KA lögðu sig fram. Sú virtist ekki raunin þá, ótrúlegt en satt, enda lét Hallgrímur þjálfara sína menn heyra það. Gagnrýndi þá harkalega og réttilega.
 
 

Fjórar breytingar voru á byrjunarliði KA í dag frá sigurleiknum gegn Þór í síðustu umferð. Birgir Baldvinsson og Rodri eru meiddir og Kári Gautason og Danijel Dejan Djuric voru á bekknum. Í stað fjórmenninganna voru í byrjunarliðinu þeir Sveinn Margeir Hauksson, Diego Montiel, Jakob Snær Árnason og Guðjón Ernir Hrafnkelsson.

Strax á upphafsmínútunum voru KA-menn aðgangsharðir við mark gestanna; eftir fyrirgjöf kýldi markvörðurinn Ari i Haraldsstovu Petersen boltann frá en ekki langt, Oliver Heiðarsson, sem lék með ÍBV síðustu ár, skaut en náði ekki að skora. Fjörleg byrjun sem reyndist þó stormur á undan logni því lítið markvert gerðist þar til rúmur stundarfjórðungur var liðinn. KA komst þá yfir með sérdeilis laglegu marki Hallgríms Mars Steingrímssonar.
 

Diego Montiel sendi laglega á Oliver Heiðarsson sem brunaði í átt að marki, Ari i Haraldsstovu sem áður var nefndur kom út fyrir vítateig og náði að spyrna boltanum frá en þeir Oliver rákust síðan saman með þeim afleiðingum að KA-maðurinn framkvæmdi þetta óvenjulega fimleikastökk sem sjá má á myndunum að ofan.

Illu heillu fyrir Eyjamenn hafði Ari markvörður spyrnt boltanum beint til Hallgríms Mars sem var rétt fyrir framan miðju, sá snjalli leikmaður lagði boltann fyrir sig og sendi hann í fallegum boga í markið. Ari var ekki kominn á sinn stað, varnarmenn gerðu örvæntingarfulla tilraun til að ná boltanum – eins og sjá má á myndinni hér að ofan – en tókst ekki og Hallgrímur Mar fagnaði 81. marki sínu í efstu deild Íslandsmótsins.
 
Eyjamenn léku boltanum oft lipurlega á milli sín úti á velli en ollu Steinþóri markverði KA aldrei teljandi vandræðum. Það var svo í blálokin að sjálfsmark ÍBV gulltryggði KA hin mikilvægu þrjú stig.
 

Valdimar Logi Sævarsson, sem kom inná þegar rúmar 20 mín. voru eftir og var mjög frískur, var maðurinn á bak við markið. Eftir skemmtilega útfærða hornspyrnu sem hann tók fékk Valdimar Logi boltann aftur frá Hallgrími Mar, lék inn á teig við endalínu og þrumaði boltanum fyrir markið þar sem Felix Örn Friðriksson reyndi að komast fyrir sendinguna en ekki vildi betur til en svo að boltinn fór af honum og smaug inn með stönginni, óverjandi fyrir markvörðinn færeyska.

Seinna mark KA í dag. Valdimar Logi Sævarsson átti fasta sendingu fyrir markið og Felix Örn Friðriksson varð fyrir því óláni að spyrna boltanum í eigið net.
Náði Steingrími og Guðmundi
 
Víðir Sigurðsson íþróttafréttamaður og höfundur bókanna Íslensk knattspyrna fjallar um Hallgrím Mar Steigrímsson á Facebook síðu sinni í kvöld:
 
Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði fyrra mark KA gegn ÍBV í dag. Hann er kominn í þá stöðu að flest hans mörk eru orðin söguleg. Með þessu marki lyfti hann sér í 14. sætið yfir markahæstu leikmennina í sögu efstu deildar karla með 81 mark en Hallgrímur jafnaði við Eyjamanninn Steingrím Jóhannesson heitinn og Keflvíkinginn Guðmund Steinarsson sem skoruðu 81 mark hvor í deildinni.