Hulda Ósk komin með 200 leiki í efstu deild
Hulda Ósk Jónsdóttir, Þingeyingurinn í liði Þórs/KA, lék sinn 200. leik í efstu deild þegar Akureyrarliðið tapaði 2:0 fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum á sunnudaginn. Þar af eru 184 leikir fyrir Þór/KA og hún er þriðja leikjahæst í liðinu á eftir Örnu Sif Ásgrímsdóttur (201) og Söndru Maríu Jessen (190).
Íþróttafréttamaðurinn Víðir Sigurðsson vekur athygli á þessu á Facebook síðu sinni í gærkvöldi.
Víðir segir: „Hulda lék einnig 16 leiki fyrir KR í deildinni árið 2015. Til viðbótar hefur Hulda spilað 32 leiki í 1. deild með Völsungi og KR. Hún hefur leikið með Þór/KA frá 2016 og eins og áður hefur komið fram hefur hún leikið lengst allra núverandi leikmanna deildarinnar án þess að missa úr leik. Hulda hefur nú leikið síðustu 84 leiki Akureyrarliðsins í efstu deild.“