Ein með öllu – hvað er á dagskrá í dag?
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu – annar stærsti dagurinn er runninn upp. Margt er á dagskrá; fjölskylduskemmtun, markaðir, útiviðburðir, tónleikar, hlaup, leiksýningar „og lífleg stemning fylla bæinn frá morgni og langt fram á nótt,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. „Hvort sem gestir vilja njóta rólegrar fjölskyldustundar eða skella sér á stærstu tónleika helgarinnar er eitthvað fyrir alla á Akureyri. Skipuleggjendur hátíðarinnar minna á að nýta strætó og létta álagið á bílastæðum bæjarins. Aukaleiðir alla helgina, meðal annars úr miðbænum á milli kl 23-01.“ – Nánari upplýsingar á heimasíðu Einnar með öllu.
DAGSKRÁIN Í DAG, LAUGARDAG
MA-TÚNIÐ
(ofan við Lystigarðinn)
Kl. 12:00 – Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland –Leikhópurinn Lotta kemur á Eina með öllu með glænýju sýninguna Litaland. Þau sýna á MA-túninu. Sýningarnar hjá Lottu eru orðnar fastur liður í verslunarmannahelginni á Akureyri og gleðja jafnt yngstu gestina sem foreldra og afa og ömmur. Miðar fást á staðnum eða á Tix.is.
MIÐBÆRINN
- SÚLUR VERTICAL – ENDAMARKIÐ Þátttakendur í fjallahlaupinu Súlur Vertical ljúka hlaupinu í göngugötunni, von er á þeim fyrstu í hádeginu. Keppt er í 100 km, 43 km, 28 km og 18 km vegalengdum. Gestir eru hvattir til að taka vel á móti hlaupurunum og skapa skemmtilega stemningu.
- Kl. 13:00 – Markaðsstemning á Ráðhústorgi – Þar verður fjölbreytt úrval vara, handverks og annarra spennandi muna og tilvalið að gera góð kaup á meðan notið er hátíðarstemningarinnar.
- Miðbæjarrölt – „Verslanir, kaffihús, ísbúðir, veitingastaðir og barir taka vel á móti gestum. Miðbær Akureyrar verður líflegur allan daginn og kjörið að gefa sér góðan tíma til að rölta um og njóta þess sem bærinn hefur upp á að bjóða,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum Einnar með öllu.
- Kl. 15:00-21:00 – Dagvaktin – DJ Ayobe heldur uppi stemningunni á útisvæðinu við Sjallann. Þar verður dansað undir berum himni og sannkölluð verslunarmannahelgarstemning myndast síðdegis.
- Vamos & Fiesta – Opið kl. 11:30–03:30. Steinbakaðar pizzur, smáréttir, shuffleboard, píla og pool eru í boði allan daginn. Dansgólfið á efri hæð opnar kl. 23:00.
- Á útisvæðinu fer fram Vamos Versló Fest, plötusnúðar að halda uppi stemningunni og NOUNOU Festival er kl 13-17 fyrir utan Vamos „en þar verður hægt að gera góð kaup!“
-
Kl. 16:00 – Sykurverk Sirkuslistakonan Húlladúlla verður við vestur inngang Sykurverks þar sem hún sýnir glæsilega hæfileika sína og skemmtir gestum á öllum aldri.
-
17:00 – Útisvæði Múlabergs – Jói P og Króli mæta á útisvið Múlabergs og hita vel upp fyrir kvöldið með kraftmikilli tónlist og góðri stemningu.
AKUREYRARVÖLLUR
- Kl. 11:00-19:00 – Náðu í armbandið þitt við suðurhlið (við Hólabraut) Akureyrarvallar, segir í tilkynningu. „Ef þú átt miða á Stadium tónleika FM95Blö, í Sjallann eða á Bogaball að þá þarftu að sækja armband, en armbandið er inngöngumiðinn þinn. Þú kemst ekki inn á svæðið án armbands. Skilríki verða skoðuð á viðburðum.“
- Kl. 13:00–23:30 – RISA tívolí – „Skemmtitækin verða á sínum stað fyrir alla aldurshópa og mikið fjör verður á svæðinu allan daginn. Miðar fást á staðnum.“
- Kl. 12:00–21:00 – Hoppukastalaland Stærsta hoppukastalaland helgarinnar verður opið þar sem yngstu gestirnir geta hoppað, leikið sér og notið dagsins.
- Matarvagnar og tónlist – Fjölbreyttir matarvagnar bjóða upp á kræsingar fyrir alla smekk og lifandi tónlist ásamt plötusnúðum sér um að halda uppi stemningunni á svæðinu.
- Kl. 14:00–16:00 – Krakkaskemmtun „í boði Kids Coolshop og Ísbúðarinnar verður glæsileg fjölskylduskemmtun þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.“
Á svið og svæði mæta meðal annars:
- Lalli töframaður
- Sólon og Dimma Dúskur
- DEISÍ, átta ára söngvari og rappari sem flytur frumsamið lag
- Blæja og Bára
- Klói Kókómjólk
- Hvolpasveitin í myndatöku
... og margt fleira sem gleður yngstu gestina. „Getur verið að Freyja sé að styrkja karamellukast?“ er spurt í tilkynningu.
ÖLL Í EINU – „FM95BLÖ Stadium“
Kl. 19:00 – Akureyrarvöllur – Svæðið verður opnað kl. 18:00 en tónleikarnir standa frá kl. 19:00 til miðnættis. Einn stærsti viðburður verslunarmannahelgarinnar fer fram á Akureyrarvelli þegar FM95BLÖ halda „Stadium tónleika“ í fyrsta sinn!
Glæsilegur hópur listamanna stígur á svið, meðal annars:
- FM95BLÖ
- DJ Muscleboy
- Úlfur Úlfur
- Birnir
- Bent
- Jóhanna Guðrún
- Saint Pete
- Sverrir Bergmann
- Ragga Gísla
- Daniil
- Gemil
... og svo er að sögn von á leynigestum!
Tónleikasvæðið opnar kl. 18:00 og tónleikarnir standa frá kl. 19:00 til miðnættis.
Engin aldurstakmörk eru á tónleikana, en 20 ára aldurstakmark er á barsvæði. Börn 12 ára og yngri fá frían aðgang í fylgd fullorðinna.
Miðasalan á Tix.is er í fullum gangi og miðar seljast hratt.
BOGABALL Í BOGANUM
Strax að loknum „Stadium-tónleikunum“ færist fjör inn í Bogann þar sem Bogaballið tekur við, að því er segir í tilkynningu. Boginn, íþróttahúsið á félagssvæði Þórs í Þorpinu, verður opnað á miðnætti.
Fram koma meðal annars:
- Færibandið og Diljá
- Bent
- Daniil
- Úlfur Úlfur
- og fleiri gestir.
20 ára aldurstakmark er á ballið. Miðasala á tix.is - stakir miðar & helgarpassar!
SJALLINN
„Það má líka henda sér í Sjallann, sem klikkar aldrei!“ segir í tilkynningunni. Húsið verður opnað kl 23:00. 18 ára aldurstakmark.
Fram koma
- Birnir
- Saint Pete
- Úlfur Úlfur
GLERÁRTORG
Verslanir og veitingastaðir. Afgreiðslutímar:
- Glerártorg: 10:00–17:00
- Nettó: 09:00–20:00
- Iðunn Mathöll: 11:30–22:00
- Skor: 14:00–23:00
- Verksmiðjan: 11:00–22:00
Nánari dagskrá má finna á heimasíðu Glerártorgs.
DALSBRAUT 1
- Kl. 12:00–16:00 – „POP-UP markaður “ – Íslenskir hönnuðir, smáframleiðendur og netverslanir bjóða upp á fjölbreytt úrval vara á vinsælum POP-UP markaði sem verður opinn alla helgina.
SKÓGARBÖÐIN
- Opið kl. 09:00–23:30 – „Á milli viðburða er tilvalið að gefa sér stund í Skógarböðunum og njóta kyrrðarinnar áður en haldið er aftur út í fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar. Best að bóka fyrirfram á heimasíðu Skógarbaðanna.“
GRÆNI HATTURINN
- Kl. 21:00 – Ljótu Hálfvitarnir „Ljótu Hálfvitarnir halda áfram að trylla lýðinn á Græna hattinum. Miðasalan er í fullum gangi.“
CENTRUM KITCHEN & BAR
- DJ Darri sér um tónlistina og heldur uppi góðri stemningu fram á kvöld.
LISTSÝNINGAR
- Nánd – Mjólkurbúðinni. Myndlistarsýning Bjargar Eiríksdóttur sem stendur til 3. ágúst. Opið er kl. 14-17 alla daga. Björg vinnur með fjölbreytta miðla þar sem náttúran og samband manns og umhverfis eru í forgrunni.
- Hringrás lífsins – Sigríður Stefanía Stefánsdóttir sýnir í Deiglunni. Sýningin var opnuð í gær og stendur þar til á morgun. Opið kl. 12-18 í dag og á morgun, sunnudag
- Hédna – Menningarhúsinu Hofi. Sýning sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu á Akureyri. Viðfangsefnin fjölbreytt þar sem tekist er á við tilveru í flóknum heimi með aðferðum myndlistar. Sýningin er opin til 16. ágúst.
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Zimoun – Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Saga Íslands: 2. hluti – Eiríkur Páll Sveinsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Guð launi þér – Úlfur Logason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Hughrif - Litir - Form I – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Sýning um heilagan fugl – Örlygur Kristfinnsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Andlegar verðmætavindur Magnúsar – Magnús Helgason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- S-I-L-I-C-A-0-3 – Hulda Rós Guðnadóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Brák Jónsdóttir. Flóra menningarhús, Sigurhæðum. Sýningin stendur til 10. október 2026.