Fara í efni
Fréttir

Langflestir skemmta sér fallega – MYNDIR

Frá stórtónleikum FM95BLÖ á Akureyrarvelli í gærkvöldi. Þar verða Sparitónleikar Einnar með öllu í kvöld. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Skipuleggjendur hátíðarinnar Einnar með öllu á Akureyri eru ánægðir með hvernig til hefur tekist; bærinn iði af lífi og gleði, og þúsundir bæjarbúa og gesta á öllum aldri hafi tekið þátt í fjölbreyttri dagskrá. Komið hefur fram í fréttum að lögregla handtók nokkra í gærkvöldi rétt fyrir utan hátíðarsvæðið á Akureyrarvelli á meðan FM95BLÖ stórtónleikarnir stóðu yfir og var sú aðgerð „unnin í góðu samstarfi við öryggisgæslu svæðisins,“ segir í tilkynningu frá stjórnendum Einnar með öllu. „Skipuleggjendur og gestir fundu fyrir sterkri nærveru lög- og öryggisgæslu sem við erum þakklát fyrir og varð þess valdandi að langstærsti hluti gesta skemmti sér konunglega,“ segir þar.

Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga var í Kjarnaskógi en sá viðburður hefur lengi notið mikilla vinsælda. Þar var poppað yfir eldi  að vanda og aðferðin vakti athygli sem fyrr ...

Skipuleggjendur Einnar með öllu áætla að 12 til 13 þúsund gestir hafi verið á tónleikunum á Akureyrarvelli í gærkvöldi og þar verður án efa einnig mikill fjöldi á kvöld þegar hátíðinni lýkur með svokölluðum Sparitónleikum, sem lengi hafa verið lokapunktur útidagskrár helgarinnar ásamt glæsilegri flugeldasýningu sem Súlur, björgunarsveitin á Akureyri sér um að vanda. Eftir tónleika og flugeldasýningu hefjast síðan dansleikir innandyra, bæði í Sjallanum og í Boganum.

... og poppkornið, sem til varð með þessari skemmtilegu aðferð, naut einnig mikilla vinsælda! Myndir: Skapti Hallgrímsson 

„Það er ótrúlega gaman að sjá bæinn lifna svona við. Brosin, hláturinn og samveran eru það sem gerir Eina með öllu að þeirri hátíð sem hún er. Við viljum þakka öllum gestum fyrir að taka þátt í að skapa þessa frábæru stemningu og öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg við að gera helgina að veruleika,“ segir í tilkynningu frá hátíðarhöldurum.

Skipuleggjendur Einnar með öllu minntu fólk á að sýna hvert öðru tillitssemi, „fylgja leiðbeiningum starfsfólks og viðbragðsaðila þar sem við á og njóta hátíðarinnar á ábyrgan hátt.“ Sú vísa er aldrei of oft kveðin og á ekki bara við um Akureyringa og gesti þeirra þessa einu helgi heldur heimsbyggðina alla, alltaf.

Fjöldi fólks hlýddi á Jóa P og Króla sem tróðu upp seinni partinn í gær á útisvæðinu við Múlaberg, neðan við frægustu kirkjutröppur lýðveldisins. Mynd: Hilmar Friðjónsson