Fara í efni
Fréttir

Eggvopn og fíkniefni í gær, skotvopn í dag

Einn þeirra sem handtekinn var í gærkvöldi á Glerárgötu, spölkorn frá Akureyrarvelli þar sem stórtónleikur fóru fram, leiddur burt í handjárnum. Mynd: Þorgeir Baldursson

Fimm voru handteknir á Akureyri síðdegis vegna gruns um vopnaburð og reyndist ábending sem borist hafði eiga við rök að styðjast. Skotvopn fundust í tveimur bílum sem voru stöðvaðir á Þingvallastræti. 

RÚV greindi fyrst frá. Frétt RÚV: Lögðu hald á skotvopn og handtóku fimm í lögregluaðferð á Akureyri

Fimm voru handteknir í dag  í þessari aðgerð lögreglunnar, sem naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Í gær voru nokkrir handteknir þar sem fíkniefni komu við sögu og einn sem reyndist með hníf á sér. Sá var vistaður í fangageymslu.