Menning
Sigríður Stefanía með sýningu í Deiglunni
31.07.2026 kl. 15:00
Sigríður Stefanía Stefánsdóttir opnar sýninguna Hringrás lífsins í Deiglunni í dag, föstudag kl. 16. Þetta er fyrsta einkasýning Sigríðar sem stundaði nám á listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri og lærði einnig leirlist.
Sýningin er bara um helgina; opið er til kl. 20 í kvöld og frá kl. 12.00 til 18.00 á laugardag og sunnudag.
„Sýningin er áminning um að fegurð býr ekki aðeins í því sem við horfum á, heldur í því sem vaknar innra með okkur þegar við gefum okkur tíma og athygli. Í gegnum lit, form og nærveru er áhorfandanum boðið að tengjast sinni innri fegurð og leyfa gleðinni og kærleikanum að koma fram á sinn eigin hátt,“ segir í tilkynningu um sýninguna. Þar kemur fram á morgun, laugardag, verði hægt að kaupa lífrænan kakóbolla af Agndofa hönnunarhúsi og einnig verður tónheilun á milli kl. 15 og 16 í rýminu.
