Fara í efni
Fréttir

easyJet flýgur tvisvar í viku frá London til Akureyrar næsta vetur

Eitt stærsta flugfélag Evrópu, easyJet, mun fljúga beint frá Gatwick í London til Akureyrar næsta vetur í áætlunarflugi. Flugfélagið hefur nú þegar opnað fyrir bókanir, en fyrsta flugferðin verður 31. október. Flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum, út mars 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

„Í tilkynningu frá félaginu eru 14 nýjar flugleiðir kynntar, þar sem ferðirnar til Akureyrar eru í brennidepli enda um glænýja leið að ræða í áætlunarflugi á Bretlandsmarkaði,“ segir þar.

Frábærir möguleikar

„Akureyri er höfuðstaður Norðurlands, sem býður upp á frábæra möguleika fyrir ferðamenn og er stutt frá aðdráttaröflum náttúru, menningar og sögu. Gestir geta notið hvalaskoðunar, farið í gönguferðir, fylgst með Norðurljósum eða farið í böð á sama tíma og þau njóta útsýnisins sem svæðið býður upp á,“ segir í tilkynningu frá easyJet.

Flugfélagið er í samstarfi við ferðaskrifstofuna easyjet Holidays og því verður einnig boðið upp á pakkaferðir til Norðurlands í tengslum við þessar flugferðir.

Áralöng undirbúningsvinna

„Vetrarflug easyJet er árangur áralangrar undirbúningsvinnu og samstarfs, þar sem ótalmörg hafa lagt hönd á plóg. Þar spilar samstarfsverkefnin Flugklasinn Air66N og Nature Direct lykilhlutverk. Með tveimur flugum til London yfir vetrartímann verða til fjölmörg tækifæri fyrir norðlenska ferðaþjónustu, sem getur sýnt hversu öflug og samheldin hún er í því að gera Norðurland að eftirsóttum áfangastað. Það má segja að nýr áfangastaður sé að verða til fyrir Breta með þessum flugferðum, einmitt á þeim árstíma þar sem rólegra hefur verið í ferðaþjónustu. Að sama skapi verður til spennandi valmöguleiki fyrir ferðalög heimafólks og annarra atvinnugreina, bæði til Bretlands en einnig í tengiflugi í gegnum Gatwick,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

„Góð reynsla var af því vetrarflugi sem boðið var upp á yfir vetrartímann fyrir nokkrum árum beint frá Bretlandi til Akureyrar. Ferðaþjónusta á Norðurlandi hefur unnið vel í vöruþróun og markaðssetningu og það er nú að skila sér. Búast má við allt að 1500 gistinóttum á viku yfir vetrartímann með þessari nýju flugleið. Því má vænta þess að flug easyJet breyti þróun ferðaþjónustu á Íslandi með beinu aðgengi að Norður- og Austurlandi.“

Mikið gleðiefni

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, fagnar ákvörðun breska flugfélagsins. „Það er mikið gleðiefni að easyJet hafi ákveðið að hefja flug til Akureyrar í vetur. Við tökum vel á móti farþegum þeirra. Það er sérstaklega gaman að fá þessa auknu umferð nú þegar styttist í að viðbygging við flugstöðina verði tekin í notkun og öllum framkvæmdum á vellinum síðan lokið vorið 2024.“

Sem fyrr segir hefur Markaðsstofa Norðurlands verið í samtali við easyJet í langan tíma og má rekja það allt aftur til ársins 2014. Áhugi flugfélagsins hefur aukist jafnt og þétt en segja má að ýmsir stærri þættir hafi gert það að verkum að félagið tók ekki ákvörðun um að fljúga til Akureyrar fyrr en nú. Má þar nefna brotthvarf Breta úr ESB, heimsfaraldur Covid og uppbyggingu Akureyrarflugvallar sem stærstu áhrifaþættina, segir í tilkynningu frá Markaðsstofunni.