Fara í efni
Fréttir

Breyta togara til að nota grænt eldsneyti – kostar 2 milljarða

Systurskipin Björg EA 7 , Kaldbakur EA 1 og Björgúlfur EA 312. Mynd af vef Samherja.

Samherji hyggst breyta einum ísfisktogara félagsins þannig að skipið geti nýtt grænt rafeldsneyti, sem svo er kallað. Með slíkri breytingu dregur verulega úr kolefnislosun. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins.

Áætlaður kostnaður er hátt í tveir milljarðar króna og hefur Orkusjóður ákveðið að styrkja verkefnið um 100 milljónir króna. Verkefnið felst í því að hanna lausn og breyta togaranum.

Stórt skref

„Styrkir Orkusjóðs eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum. Áhersla er lögð vistvæna orkunýtingu sem og að styðja við orkuskipti um land allt,“ segir á vef Samherja.

Hjörvar Kristjánsson yfirskipaverkfræðingur útgerðar hjá Samherja segir að mikil þekking sé innan félagsins á þessu sviði, auk þess standi yfir viðræður við ýmsa samstarfsaðila.

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku-, og loftslagsráherra, Hjörvar Kristjánsson skipaverkfræðingur, Sunneva Ósk Guðmundsdóttir framleiðslustjóri landvinnslu ÚA, Dagný Lind Kristjánsdóttir í stjórn Samherja hf. og Haraldur Benediktsson stjórnarformaður Orkusjóðs.

„Þetta er viðamikið verkefni. Í fyrsta lagi viljum við sem ábyrgur aðili leggja okkar að mörkum að Ísland taki stór skref í átt að settum markmiðum í loftslagsmálum,“ segir Hjörvar á vef Samherja. ,,Sömuleiðis viljum við stuðla að því að innlend fyrirtæki öðlist þekkingu á þeirri tækni sem þarf til að keyra skip á kolefnisfríu eldsneyti og vinnum því náið með leiðandi fyrirtækjum á þessu sviði. Þær áætlanir sem við erum að vinna með núna, gera ráð fyrir að breyta skipi þannig að hægt verði að draga úr losun koldíoxíðs um 75% eða sem samsvarar þrjú þúsund tonnum á ári. Við erum þegar í viðræðum við ýmis fyrirtæki í tengslum við þetta verkefni, auk þess sem mikil þekking er innan Samherja, sem hvortveggja gerir okkur kleift að vinna alla þætti með ákveðnum og hnitmiðum hætti. Allt er þetta kostnaðarsamt og eins og fyrr segir gera okkar áætlanir ráð fyrir því að kostnaðurinn við breytingar á einu skipi nálgist tvo milljarða króna.“

Íslenskur sjávarútvegur í fararbroddi

„Við höfum alla burði til að vera í forystu á heimsvísu vegna framlags til umhverfismála. Íslenskur sjávarútvegur er í fararbroddi á mörgum sviðum og við hjá Samherja erum vel í stakk búin til að hefja fyrir alvöru undirbúning að því að keyra skipin á kolefnisfríu eldsneyti. Þessi styrkur Orkusjóðs er ánægjuleg staðfesting á því að við erum á réttri braut,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja á vef félagsins.