Fara í efni
Fréttir

Bleikur stuðningur skiptir miklu máli

Starfsfólk verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju klæðast bleiku í tilefni dagsins eins og margir aðrir. Mynd af vef félagsins í morgun.

Bleiki dagurinn er runninn upp, hápunktur Bleiku slaufunnar, árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands.

„Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár og er haldinn hátíðlegur um land allt,“ segir á vef Krabbameinsfélagsins. „Á Bleika daginn er hefð fyrir því að bera Bleiku slaufuna, klæðast bleiku, halda bleik boð, gæða sér á bleiku bakkelsi og lýsa skammdegið bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein upplifi stuðning og samstöðu.“

„Við heyrum það á hverjum einasta degi hjá félaginu. Hvað þessi bleiki stuðningur skiptir miklu máli fyrir allar þær konur sem eru að glíma við krabbamein í dag, eða hafa háð þá glímu, fjölskyldur þeirra og fjölskyldur þeirra sem hafa misst sínar konur úr krabbameinum. Það skiptir máli að þið vitið að þið eruð að gera eitthvað sem skiptir máli,“ segir á vef félagsins.
       _ _ _

Bleikar októberdömur! Vilborg Jóhannsdóttir í Centro, til vinstri, og Inga Vestmann í Pedromyndum, standa árlega fyrir Dekurdögum á Akureyri og hafa safnið milljónum króna undanfarin ár. Sjá hér: Glæða bæinn lífi til styrktar góðu málefni.
_ _ _

Sýnum stuðning í verki

Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, segir að þótt Bleiki dagurinn sé tilefni til þess að gleðjast með vinnufélögunum, vinum og fjölskyldu, þá risti hann líka dýpra. „Það heyrum við á hverjum einasta degi hjá félaginu. Hvað þessi bleiki stuðningur skiptir miklu máli fyrir allar þær konur sem eru að glíma við krabbamein í dag, eða hafa háð þá glímu, fjölskyldur þeirra og fjölskyldur þeirra sem hafa misst sínar konur úr krabbameinum. Það skiptir máli að þið vitið að þið eruð að gera eitthvað sem skiptir máli.“

Krabbameinsfélagið hvetur því öll til að gera sér glaðan dag, vera bleik fyrir okkur öll, „og sýna þannig stuðning í verki, því hann skiptir svo sannarlega máli. Krabbameinsfélagið tekur einnig fagnandi á móti bleiku myndefni í gegnum bleikaslaufan@krabb.is eða með merkingum á samfélagsmiðlum, til að hægt sé að deila stemningunni sem víðast.“