Bílaleiga Akureyrar fyrsti kostur eftir útboð
Nýverið bauð Fjársýsla ríkisins út rammasamning um bílaleigubíla og hlaut Höldur - Bílaleiga Akureyrar hæstu einkunn bjóðenda og verður því fyrsti kostur ýmissa stofnana, fyrirtækja og sveitarfélaga sem koma að þessum stóra samningi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Höldi Bílaleigu Akureyrar í dag.
„Útboðið er viðamikið og nær samningurinn yfir alla langtíma- og skammtímaleigu innanlands á fólksbílum, jeppum og 7-9 manna smárútum. Markmið útboðsins var að gera einfaldan, skýran og notendavænan samning og tryggja þannig hagkvæm verð og góða þjónustu,“ segir í tilkynningunni.
Gefin voru stig fyrir verð, þjónustu við landsbyggðina, úrval og fjölda af rafbílum ásamt umhverfisvottun. „Höldur-Bílaleiga Akureyrar uppfyllir þessa þætti einstaklega vel. Góð þjónusta er okkur afar mikilvæg, enda kjörorð okkar Þínar þarfir-okkar þjónusta,“ segir í tilkynningunni.
Starfsstöðvar Hölds - Bílaleigu Akureyrar eru 21 talsins um allt land og í tilkynningunni segir að rafbílaflotinn er sá stærsti á markaðnum – fyrirtækið er með um 750 rafbíla, auk 1.200 tengiltvinnbíla, og þá hefur fyrirtækið verið með umhverfisvottunina ISO14001 frá árinu 2010.
Í tilkynningunni segir ennfremur:
Ofangreindir þættir, auk sterkrar liðsheildar starfsfólks Hölds og það traust sem fyrirtækið hefur út á við, skilaði afgerandi niðurstöðum í útboðinu en stigagjöfin var sem hér segir:
Hluti A - Rafbílar:
- Höldur 93,5 stig
- Hertz 66,25 stig
- Alp 56,35 stig
Hluti B – Aðrir orkugjafar:
- Höldur 87,84 stig
- Hertz 72,15 stig
- Alp 64,20 stig
„Samningurinn hefur nú þegar tekið gildi og við hlökkum til að veita aðilum rammasamnings ríkisins framúrskarandi þjónustu um allt land,“ segir í tilkynningunni frá Höldi - Bílaleigu Akureyrar.