Bernharð Haraldsson – minningar

Útför Bernharðs Sigursteins Haraldssonar, fyrsta skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri, verður frá Akureyrarkirkju í dag, föstudaginn 13. júní, kl. 13.00. Minningarathöfn var í Digraneskirkju í Kópavogi 30. apríl.
Bernharð fæddist í Árnesi í Glerárþorpi 1. febrúar 1939 og ólst upp á Akureyri. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 20. maí.
Foreldrar hans voru Þórbjörg Sigursteinsdóttir, húsfreyja og verkakona, ættuð úr Hörgárdal, og Haraldur Norðfjörð Ólafsson frá Brekku í Glerárþorpi, sjómaður og netagerðarmaður.
Bernharð var skipaður skólameistari Verkmenntskólans á Akureyri 1. júní 1983 en skólinn var formlega stofnaður ári síðar, 1. júní 1984, og settur í fyrsta skipti 1. september það ár. Bernharð gegndi embætti skólameistara til 1999.
Eftirlifandi eiginkona Bernharðs er Ragnheiður Hansdóttir, tannlæknir og sérfræðingur í bitlækningum. Þau gengu í hjónaband 1966 og eignuðust fjögur börn: Harald, Hans Braga, Arndísi og Þórdísi.
Bernharð Haraldsson – lífshlaupið
Eftirtalin skrifa minningargrein um Bernharð á Akureyri.net í dag. Smellið á nöfn höfunda til að lesa grein.