Fara í efni
Fréttir

Baldvin kaupir erlenda starfsemi Samherja

Baldvin Þorsteinsson

Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Öldu Seafood í Hollandi, hefur keypt félagið af Samherja Holding. Alda Seafood hefur haldið utan um erlenda starfsemi Samherja í Evrópu og í NorðurAmeríku frá árinu 2018. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar segir að kaupverð hafi ekki fengist gefið upp.

Baldvin er sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, og Helgu Steinunnar Guðmundsdóttur, sem situr í stjórn félagsins.

„Samherji Holding á sem kunnugt er einnig þriðjungshlut í Eimskip, en sá hlutur hefur nú verið færður undir eignarhaldsfélagið Seley ehf. og verður áfram í eigu Samherja. Baldvin var stjórnarformaður Eimskips þar til á þessu ári og situr nú í varastjórn,“ segir í Morgunblaðinu.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir í samtali við Morgunblaðið að erlend starfsemi félagsins hafi gengið vel undir hatti Öldu Seafood á liðnum árum. Aðspurður um ástæðu þess að Samherji selji þennan hluta nú segir hann að félagið hafi farið í gegnum kynslóðaskipti og kaup Baldvins á Öldu séu eðlilegt framhald af því.

„Þetta er erlent félag og starfsemin að öllu leyti erlendis. Við teljum að félagið sé vel komið í hans höndum og þeirra stjórnenda sem hafa starfað þar,“ segir hann.

Nánar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.