Fara í efni
Fréttir

Akureyrarlistinn birtir nöfn sjö efstu

Akureyrarlisti Þórhalls Jónssonar varabæjarfulltrúa hefur birt nöfn sjö efstu manna listanum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í maí. Þórhallur er í efsta sæti, Karen Sigurbjörnsdóttir í öðru sæti og Helgi Steinar Halldórsson í því þriðja, eins og akureyri.net sagði frá hér fyrir nokkrum dögum.

Efstu sæti listans eru skipuð sem hér segir:

  • 1. Þórhallur Jónsson - framkvæmdastjóri & varabæjarfulltrúi
  • 2. Karen Sigurbjörnsdóttir - mannauðsfulltrúi & flíspeysumamma
  • 3. Helgi Steinar Halldórsson - fasteignasali & ljósamaður
  • 4. Kristrún María Björnsdóttir - doktorsnemi
  • 5. Darri Rafn Hólmarsson - tölvunarfræðingur & plötusnúður
  • 6. Dana Rán Jónsdóttir - sérfræðingur & líftæknifræðingur
  • 7. Vilmundur Aðalsteinn Árnason - framkvæmdastjóri & fyrrverandi sjómaður

„Listinn er skipaður öflugum og framsæknum hópi fólks sem vill ná raunverulegum árangri fyrir bæjarbúa með skýrum áherslum og lausnum,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarlistanum.

„Helstu áherslumál Akureyrarlistans snúa að atvinnulífi, uppbyggingu, menntun, samgöngum, málefnum eldra fólks, menningu, íþróttum og mannlífi, lækkun skatta og auknu samtali við ríkið. Markmiðið er að efla Akureyri sem sterkt mótvægi við höfuðborgarsvæðið og tryggja áframhaldandi vöxt og lífsgæði í bænum. Akureyrarlistinn leggur áherslu á að tala skýrt, vinna hratt og skila sýnilegum árangri, með metnað, festu og ekki síst gleði að leiðarljósi.“