Fara í efni
Fréttir

Ævintýri easyJet og Akureyrar er hafið

Áhöfn fyrstu easyJet vélarinnar með íslenska fánann. Á easyJet skiltinu halda, frá vinstri, Rosanna Medina, tengiliður Easy Jet við Akureyrarflugvöll, Hjördís Þórhallsdóttir flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli, Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, og Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands. Ljósmynd: ISAVIA/Þórhallur Jónsson.

Nýr kafli í sögu norðlenskrar ferðaþjónustu hófst í morgun þegar fyrsta flugvél breska flugfélagsins easyJet lenti á Akureyrarflugvelli. Vélin flutti breska ferðamenn frá Gatwick flugvelli í London og næstu fimm mánuði verður flogið á milli þessara áfangastaða tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum.

„Norðlensk ferðaþjónusta í samstarfi við sveitarfélög og ríki hefur unnið ötullega að því á undanförnum áratug að fá reglubundið millilandaflug um Akureyrarflugvöll í gegnum Flugklasann Air 66N sem rekinn er af Markaðsstofu Norðurlands,“ segir í tilkynningu frá Markaðsstofunni. „Sérstök áhersla hefur verið lögð á vetrarmánuði í þessu samhengi og því er sérstaklega ánægjulegt að easyJet ríði á vaðið sem fyrsta erlenda flugfélagið sem heldur úti millilandaflugi um Akureyri. Breskir ferðamenn hafa í gegnum tíðina verið fjölmennasti hópurinn sem kemur til Íslands yfir vetrartímann og því ljóst að koma easyJet mun hafa gríðarleg áhrif.“

Ljósmynd: ISAVIA/Þórhallur Jónsson

Mikilvægt að tryggja flugið í sessi

Á vettvangi Flugklasans Air 66N hefur samtalið við easyJet staðið yfir í fjölda ára, en svona verkefni krefjast þolinmæði og þrautseigju, að sögn Arnheiðar Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands. Frá fyrsta fundi Flugklasans með fulltrúum félagsins árið 2014 hafi þeir sýnt áhuga og hann hafi aukist jafnt og þétt, þrátt fyrir að heimsfaraldur Covid-19 hafi sett strik í reikninginn.

„Frá stofnun 2011 hefur markmið Flugklasans verið að ná inn beinu flugi frá Bretlandi tvisvar í viku allt árið. Nú erum við komin með veturinn og mikilvægt að tryggja það flug í sessi enda er aukin umferð í beinu flugi að vetri til forsenda þess að hægt verði að ná niður árstíðarsveiflunni og byggja upp heilsársferðaþjónustu á svæðinu. Mikil vinna hefur verið unnin með breskum ferðaskrifstofum og norðlenskum ferðaþjónustuaðilum til að þróa eftirspurn eftir vetrarvörum. Nú er markmiðið að flugi easyJet verði haldið áfram og að þetta flug ryðji brautina fyrir fleiri áfangastaði í beinu flugi um Akureyrarflugvöll,“ segir Arnheiður.

Hjördís Þórhallsdóttir flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli og umdæmisstjóri ISAVIA á Norður- og Austurlandi. Ljósmynd: ISAVIA/Þórhallur Jónsson

Verður vinsæll áfangastaður

„Við erum hæstánægð með að hefja flug á þessari nýju leið milli London og Akureyrar, og að vera eina breska flugfélagið sem flýgur til Norðurlands. Þessi einstaka leið skapar fleiri valmöguleika og fjölbreytni fyrir okkar viðskiptavini í vetur frá Bretlandi,“ segir Ali Gayward, svæðisstjóri easyJet í Bretlandi, í tilkynningu Markaðsstofunnar.

„Þessi nýja leið okkar býður upp á ýmsa nýja möguleika, með upplifunum á borð við heit náttúruböð, jeppaferðir, hvalaskoðun og norðurljósaskoðun. Við erum því viss um að þessi áfangastaður mun verða vinsæll og við hlökkum til að bjóða farþega velkomna um borð í flugvélarnar okkar á leið til Akureyrar,“ segir Gayward jafnframt.

Ljósmynd: ISAVIA/Þórhallur Jónsson