80 ár í dag frá stofnun Útgerðarfélagsins

Útgerðarfélag Akureyringa (ÚA) er 80 ára dag og verður tímamótanna fagnað með ýmsum hætti. ÚA er í eigu Samherja og er fjallað um tímamótin á vef félagsins í dag. Í tilefni afmælisins verður almenningi verður almenningi boðið að kynna sér starfsemi ÚA á Fiskitanga næstkomandi laugardag, 31. maí, frá klukkan 11:00-13:00.
Útgerðarfélag Akureyringa var formlega stofnað 26. maí 1945. Nokkrum vikum áður eða 14. mars 1945 var boðað til undirbúningsfundar til að kanna áhuga á stofnun útgerðarfélags í bænum, með það fyrir augum að sækja um heimild til skipakaupa til ríkisstjórnarinnar.
„Skemmst er frá því að segja að áhugi bæjarbúa var ríkur og því tók tiltölulega skamman tíma að stofna útgerðarfélag með formlegum hætti og senda inn umsókn til ríkisstjórnar,“ segir á vef Samherja.
Kaldbakur EA 1 tekur ís og kost við Sverrisbryggju áður en haldið er til veiða. Vélar skipsins hafa greinilega verið ræstar. Mynd: Gísli Ólafsson.
„Tæpum tveimur árum eftir stofnfundinn þann 17. maí 1947 kom fyrsti togari Útgerðarfélags Akureyringa til heimahafnar. Þetta var Kaldbakur EA 1, 654 brúttótonna skip, smíðað í Englandi.
Þennan dag var hátíð á Akureyri, mikill mannfjöldi safnaðist saman á bryggjunni til að taka á móti þessu nýja glæsilega skipi, sem ætlað var að skapa ný störf í bænum.
Fleiri togarar bættust við á næstu árum og Útgerðarfélag Akureyringa varð fljótt öflugur burðarás í atvinnulífi bæjarins.“
Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja. Mynd: Sindri Swan
Afmæliskaffi
- Í tilefni þessara tímamóta verður almenningi boðið að kynna sér starfsemi ÚA á Fiskitanga, laugardaginn 31. maí, frá klukkan 11-13.
- Fiskvinnsluhús ÚA verður opið almenningi og kaffiveitingar verða í matsal. Við Togarabryggjuna verður togarinn Kaldbakur EA 1, sömuleiðis opinn almenningi á fyrrgreindum tíma.
- Fyrir framan fiskvinnsluhúsið hefur verið sett upp ljósmyndasýning, sem varpar ljósi á sögu Útgerðarfélags Akureyringa í 80 ár, bæði til lands og sjávar.
- Þetta er kjörið tækifæri til að skyggnast inn í veröld íslensks sjávarútvegs, sem er í fremstu röð á heimsvísu.
Kaldbakur EA 1 verður opinn almenningi laugardaginn 31. maí frá klukkan 11:00 til 13.00. Mynd: Samherji
Sýning í Iðnaðarsafninu á Akureyri
Á sjómannadaginn, sunnudaginn 1. júní klukkan 13:00 verður opnuð sýning í Iðnaðarsafninu á Akureyri, þar sem saga og starfsemi félagsins er rakin í máli, munum og myndum. Húsnæði Iðnaðarsafnsins er á Krókeyri. Frítt er inn á sýninguna þennan dag.
Vel búin landvinnsla og vel búið skip
„Það er okkur sönn ánægja að opna dyrnar og sýna almenningi starfsemina á þessum tímamótum. Hundruð bæjarbúa hafa tekið sín fyrstu skref á vinnumarkaði og fengið sín fyrstu laun í sumarvinnu hjá ÚA. Hérna er greinilega gott að starfa, því starfsaldur hefur alla tíð verið hár hjá félaginu,“ segir Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja á vef félagsins í dag.
„Landvinnslan er vel búin tækjum og íslensk hátækni er áberandi. Togarinn Kaldbakur EA 1 er sömuleiðis afskaplega vel búið skip á allan hátt og hlaðið hátækni. Eins og tilheyrir á stórum tímamótum verður boðið upp á kaffiveitingar og ég vonast til að bæjarbúar og gestir komi til með að fjölmenna. Sömuleiðis hvet ég fólk til að leggja leið sína í Iðnaðarsafnið, kynna sér söguna og sjá hvernig þessi grunn atvinnugrein þjóðarinnar, hefur þróast í áranna rás,“ segir Kristján.
Í ársbyrjun 1950 var í fyrsta skipti saltað í landi á vegum ÚA. Myndin sýnir saltfiskstæður norðan við fiskverkunarstæðuna árið 1952. Verið er að umstafla. Ekki er vitað hver tók myndina.
Líf og fjör í vinnslunni. Mynd: Hörður Geirsson
Athafnasvæði ÚA. Landvinnslan verður opin almenningi laugardaginn 31. maí klukkan 11:00 - 13:00. Mynd: Hörður Geirsson.
Landvinnslan er afar tæknivædd. Mynd: Hörður Geirsson