Fréttir
55,25% höfðu kosið á Akureyri klukkan 21
16.05.2026 kl. 22:00
Akureyringar koma á kjörstað í Verkmenntaskólanum í dag. Mynd: Þorgeir Baldursson
Klukkan níu í kvöld, klukkustund áður en kjörstað í Verkmenntaskólanum var lokað, höfðu 8.238 íbúar Akureyrar kosið. Það eru 55,25% þeirra 15.544 sem eru á kjörskrá.
Kjörstaðir voru opnaðir klukkan 9:00, í VMA, í Hrísey og í Grímsey, og upplýsingar um þátttöku kjósenda voru birtar á klukkustundar fresti. í dag á vef Akureyrarbæjar.
Kjörsókn þróaðist sem hér segir:
- Kl. 10:00 voru 445 búnir að kjósa, alls 2,98% þátttaka.
- Kl. 11:00 voru 1050 búnir að kjósa, alls 7,04% þátttaka.
- Kl. 12:00 voru 1680 búnir að kjósa, alls 11,29% þátttaka.
- Kl. 13:00 voru 2460 búnir að kjósa, alls 16,50% þátttaka.
- Kl. 14:00 voru 3392 búnir að kjósa, alls 22,75% þátttaka.
- Kl. 15:00 voru 4409 búnir að kjósa, alls 29,57% þátttaka.
- Kl. 16:00 voru 5254 búnir að kjósa, alls 35,24% þátttaka.
- Kl. 17:00 voru 6149 búnir að kjósa, alls 41,24% þátttaka.
- Kl. 18:00 voru 6815 búnir að kjósa, alls 45,71% þátttaka.
- Kl. 19:00 voru 7449 búnir að kjósa, alls 49,96% þátttaka.
- Kl. 20:00 voru 7886 búnir að kjósa, alls 52,89% þátttaka.
- Kl. 21:00 voru 8238 búnir að kjósa, alls 55,25% þátttaka.
asdf