Fara í efni
Fréttir

156 stúdentar brautskráðir úr MA

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Menntaskólanum á Akureyri var slitið í 143. sinn í morgun við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni. Veðrið lék svo sannarlega við nýstúdentana og fjölskyldur þeirra.

Alls voru 156 stúdentar brautskráðir, að því er segir á vef MA. Karl Frímannsson skólameistari brautskráði sína fyrstu stúdenta og tímamótin voru fleiri því þetta er fyrsta skiptið sem eru brautskráðir stúdentar af sviðslistabraut.

Dúx skólans er María Björk Friðriksdóttir 9,56 og Helga Viðarsdóttir semidúx með 9,54, báðar voru á heilbrigðisbraut.

Hæstur í 1. bekk: Árni Stefán Friðriksson í 1Y með 9,7.

Hæstur í 2. bekk: Magnús Máni Sigurgeirsson í 2X með 9,7.

Hæst í 3. bekk: María Björk Friðriksdóttir í 3T með 9,8.

Nýstúdentar sáu um tónlistarflutning við athöfnina. Ísabella Sól Ingvarsdóttir og Þorsteinn Jakob Klemenzson fluttu lagið Þó himnarnir hrynji, lag og ljóð eftir Egil Ólafsson

Birgir Orri Ásgrímsson, sem flutti ávarp nýstúdents, og Karl Frímannsson skólameistari. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Hrefna Logadóttir, Óskar Máni Davíðsson og Þorsteinn Jakob Klemenzson fluttu lagið Verum í sambandi með Sprengjuhöllinni.

Í lok athafnar var skólasöngurinn sunginn við undirleik Eysteins Ísidórs Ólafssonar. Forsöngvarar voru kennararnir Anna Eyfjörð, Harpa Sveinsdóttir og Hólmfríður Þorsteinsdóttir.

Fjórir kennarar voru sérstaklega kvaddir við brautskráningu; Björn Vigfússon sögukennari, Margrét K. Jónsdóttir þýsku- og enskukennari, Selma Hauksdóttir dönskukennari og Sonja Sif Jóhannsdóttir kennari í náttúrulæsi, íþróttum og líffræði. Skólameistari veitti þeim öllum gulluglu skólans í þakklætisskyni fyrir starf þeirra við skólann.

Stúdentar MA 2023 ásamt Karli Frímannssyni skólameistara og Sigurlaugu Önnu Gunnarsdóttur aðstoðarskólameistara. Ljósmynd: Páll A. Pálsson

Löng hefð er fyrir því að fulltrúar afmælisárganga komi að brautskráningu og flestir þeirra styrkja Uglusjóð, hollvinasjóð MA.

Fulltrúi 60 ára stúdenta, Bryndís Guðmundsdóttir

Fulltrúi 50 ára stúdenta, Aðalbjörg Helgadóttir

Fulltrúi 40 ára stúdenta, Kristín Gunnlaugsdóttir

Fulltrúi 25 ára stúdenta, Héðinn Jónsson. Hann tilkynnti einnig um úthlutanir úr Uglusjóði, til þróunarverkefna kennara og til félagslífs og aðstöðu nemenda

70 ára stúdentar sendu kveðju sem skólameistari las upp

Birgir Orri Ásgrímsson flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta, hann var forseti skólafélagsins Hugins sem stýrði félagslífi nemenda í vetur.

Að lokinni athöfn var haldið í MA þar sem myndir af árganginum og einstökum bekkjum voru teknar. Í kvöld er svo tæplega 1000 manna veisla, nýstúdentanna, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans í Íþróttahöllinni.