Fara í efni
Sverrir Páll

Tæpar 600 milljónir til SAk síðan 2013

Bjarni Jónasson, þáverandi forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, Kristján Þór Júlíusson þáverandi heilbrigisráðherra og Stefán Gunnlaugsson, lengst til hægri, á afmælishátíðinni í desember 2013, þegar Hollvinasamtök sjúkrahússins á Akureyri voru formlega stofnuð. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) færðu gjörgæslu- og lyflækningadeildum stofnunarinnar 10 öndunarvélar að gjöf á dögunum eins og akureyri.net greindi frá. Verðmæti tækjanna er 13 milljónir króna og þar með hafa Hollvinir gefið SAk ýmiskonar tæki og búnað að verðmæti 550 milljóna króna frá stofnun – auk 30 milljóna áður en félagið var formlega stofnað, að sögn formannsins.

„Án félagsmanna okkar gætum við ekki staðið að verkefnum sem þessum. Í kringum 2.300 einstaklingar hafa greitt árgjaldið á þessu ári og fyrir þann stuðning erum við afar þakklát,“ sagði Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður Hollvinasamtakanna, þegar öndunarvélarnar voru afhentar, og hvatti að vanda fleiri til að ganga til liðs við Hollvinasamtökin: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri Hollvini. Með því að greiða árgjaldið eða skrá sig í samtökin tekur fólk beinan þátt í að efla þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri og stuðla að því að sjúklingar fái sem besta umönnun og aðbúnað.“

Umfjöllun Morgunblaðsins um stofnun Hollvinasamtaka Sjúkrahússins á Akureyri í desember árið 2013.

Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri voru formlega stofnuð á afmælishátíð sjúkrahússins 12. desember árið 2013. Tveimur dögum síðar voru liðin 60 ár frá því starfsemi sjúkrahússins var flutt í núverandi húsakynni á Eyrarlandsholti og því var einnig fagnað þennan desemberdag, að 140 ár voru liðin frá því starfsemi fyrsta sjúkrahússins á Akureyri hófst, árið 1873.

Frá stofnun hafa Hollvinir gefið SAk tæki og búnað að verðmæti 550 milljóna sem fyrr segir. „Inni í þeirri tölu eru reyndar ekki 30 milljónir sem Stebbi Gull safnaði fyrir sjúkrarúmum áður en félagið var formlega stofnað; þá voru öll rúm á legudeildum stofnunarinnar endurnýjuð,“ segir Jóhannes Gunnar Bjarnason við akureyri.net. Því má með góðri samvisku segja heildarupphæðina 580 milljónir.

Langþráður draumur

Þegar Hollvinasamtökin voru stofnuð sagði Bjarni Jónasson, forstjóri stofnunarinnar, að árum saman hefði verið rætt um að koma á fót hollvinasamtökum sem stutt gætu við starfsemi sjúkrahússins og eflt þá þjónustu sem þar fer fram. Stofnun samtakanna væri því mikilvægur stuðningur starfsmönnum og undirstrikaði þann hlýhug sem samfélagið sýndi starfseminni.

Einn þeirra sem unnið höfðu ötullega  að stofnun hollvinasamtakanna, Stefán heitinn Gunnlaugsson, rakti aðdragandann að því og aðkomu sína að verkefninu. Hann hefði þurft að dvelja í nokkra mánuði á lyflækningadeild vegna erfiðra veikinda og að því loknu gengið á fund Bjarna forstjóra og sagst telja sig í stórri skuld við sjúkrahúsið.

„Get ég ekki gert eitthvað fyrir ykkur?“ spurði Stefán og Bjarni nefndi þá þann langþráða draum að stofnuð yrðu hollvinasamtök sjúkrahússins. Stefán gekk í málið, ásamt Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, Jóni Birgi Guðmundssyni og Bjarna forstjóra, eins og það var orðað í Morgunblaðinu á sínum tíma. 

Heimasíða Hollvina

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00