Fara í efni
Sverrir Páll

Sjö sveifluðu skóflu með tilþrifum – MYNDIR

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Hálfnað er verk þá hafið er!

Fyrsta skóflustunga var í dag tekin að langþráðri nýbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri, eins og akureyri.net hefur áður fjallað um; byggingu sem mun gjörbreyta aðstæðum sjúklinga og starfsfólks. Sjö skóflur voru notaðar og „fyrstu skóflustungurnar“ því í raun sjö.

Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf. sem sér um allar framkvæmdir fyrir hönd ríkisins, stjórnaði aðgerðum í dag;  stillti skóflufólkinu upp í rétta röð, og eftir að hver og einn hafði stungið upp torfhnaus taldi Gunnar í, ef svo má segja – einn, tveir og þrír ... og þá flugu hnausarnir.

Sjömenningarnir sem tóku skóflustungu með tilþrifum eru, frá vinstri: Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður Hollvinasamtaka Sjúkrahússins á Akureyri, Guðmunda Birna Kristjánsdóttir sjúkraliði á lyflækningadeild SAk, Gunnar Svavarsson, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Guðjón Hauksson forstjóri SAk, Valdís Eyja Pálsdóttir, formaður Geðverndarfélags Akureyrar og Árni Jóhannesson geðlæknir á SAk.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00