Fara í efni
Sverrir Páll

Stjórnvöld bjargi Kristnesspítala

Leiðin liggur frá Kristnesspítala um þessar mundir. Hátt í 2000 manns hafa sett nafn sitt á lista þar sem stjórnvöld eru hvött til að tryggja fjármagn til nauðsynlegs viðhalds og uppbyggingar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

María Pálsdóttir, sem kom á fót og rekur Hælið – setur um sögu berklanna á Kristnesi, setti af stað undirskriftarsöfnun í maí þar sem stjórnvöld eru hvött til að bjarga endurhæfingunni á Kristnesi, eins og það er orðað. Hægt verður að skrifa undir listann á vefnum út þennan mánuð.

Blikur eru á lofti; mygla fannst fyrr árinu í húsnæði Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit og ákveðið hefur verið að færa alla starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) af staðnum og til Akureyrar um óákveðinn tíma, eins og akureyri.net greindi frá á dögunum. SAk hefur verið þar með endurhæfingaþjónustu en eftir ítarlega skoðun og greiningu á húsnæðinu fékkst sú niðurstaða að það sé óhæft fyrir heilbrigðisþjónustu.

Undirskriftalistinn nefnist Björgum endurhæfingunni á Kristnesi og textinn er svohljóðandi:

Við skorum á stjórnvöld að bregðast við án tafar og tryggja fjármagn til nauðsynlegs viðhalds og uppbyggingar á Kristnesi svo ekki þurfi að draga úr eða leggja niður starfsemina þar sem er samfélaginu nauðsynleg

Þeir sem vilja gera það geta smellt á þessa slóð: https://island.is/undirskriftalistar/7ba3d6d5-fe82-481b-9a04-44e81ff23282 og skrá sig síðan inn með rafrænum skilríkjum.

Framtíðin óráðin

Starfshópur, sem heilbrigðisráðuneytið hefur skipað til að vinna að framtíðarsýn fyrir fasteignir Kristnesspítala, skoðaði aðstæður á staðnum fyrir skemmstu en óvíst er hvað framtíðin ber í skauti sér miðað við svar ráðuneytisins við fyrirspurn akureyri.net: „Engar framkvæmdir standa yfir á Kristnesspítala um þessar mundir. Verulegra úrbóta er þörf til að koma húsnæðinu í fullnægjandi og heilnæmt ástand og er ekki talið tímabært að ráðast í slíkar framkvæmdir fyrr en niðurstöður liggja fyrir um framtíðarnýtingu húsnæðisins og framtíðarskipan starfseminnar.“

  • Frétt akureyri.net fyrir nokkrum vikum:

Starfshópur skoðaði aðstæður í Kristnesi

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00