Hollvinir gefa SAk 10 nýjar öndunarvélar
Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hafa gefið gjörgæslu- og lyflækningadeild sjúkrahússins tíu nýjar BiPAP-öndunarvélar. Þær „munu efla verulega getu SAk til að veita sjúklingum með öndunarfærabilun nauðsynlegan öndunarstuðning,“ segir á vef SAk.
Að sögn Brynju Drafnar Tryggvadóttur, deildarstjóra gjörgæsludeildar, er með vélunum hægt að bjóða upp á fjölþætta meðferð fyrir fólk með ýmiss konar öndunarfærabilanir.
„Þetta eru öndunarvélar sem veita ytri öndunarstuðning og bjóða upp á fjölþætta meðferð, allt frá háflæði súrefnismeðferð yfir í öndunarstuðning með þrýstingi sem hjálpar fólki að draga andann. Vélarnar hafa einnig þann valmöguleika að nýtast sem varaöndunarvélar fyrir alvarlega veika sjúklinga sem eru sofandi í öndunarvél. Það tryggir að við eigum ávallt nægilega margar vélar til að veita nauðsynlegan stuðning,“ segir Brynja.
Hún bendir á að gjöfin marki mikilvæg tímamót fyrir SAk. Fyrir voru fimm BiPAP-vélar sem höfðu verið mikið notaðar í gegnum árin og voru orðnar bæði gamlar og úr sér gengnar.
„Þær voru ekki nægilega margar og stundum höfum við þurft að forgangsraða notkun þeirra. Nýju vélarnar aðlagast betur þörfum hvers einstaklings og endurspegla nýjustu þróun á þessu sviði,“ segir hún.
Brynja segir stuðning Hollvina skipta sjúkrahúsið miklu máli. „Það er ómetanlegt fyrir okkur sem stofnun að fá gjafir og styrki líkt og Hollvinir veita okkur, enda skiptir það miklu máli að finna stuðning samfélagsins við starfsemi SAk. En fyrst og fremst er þetta auðvitað ómetanlegt fyrir sjúklingana okkar, því með þessum búnaði getum við veitt þeim bestu mögulegu þjónustu.“