Fara í efni
Sverrir Páll

Skák: Símon varð líka hraðskákmeistari

Símon Þórhallsson er tvöfaldur Akureyrarmeistari í skák árið 2026. Mynd: faroechess.com.

Skákmaðurinn Símon Þórhallsson hefur verið í miklu stuði undanfarið og eftir að hafa unnið skákmót í Færeyjum og orðið Skákmeistari Akureyrar í fyrsta sinn gerði hann sér lítið fyrir og vann líka hraðskákmót Akureyrar.

Hraðskákmótið er skv. venju haldið í kjölfar Skákþings Akureyrar, þar sem Símon tryggði sér sigur í lokaumferðinni. Að þessu sinni mættu ellefu keppendur til leiks í hraðskákinni og tefldu allir við alla. Símon gerði sér lítið fyrir og vann allar sínar tíu skákir. Jón Kristinn Þorgeirsson varð annar með 9 vinninga en hann vann allar aðrar viðureignir en gegn Símoni. Fráfarandi hraðskákmeistari Akureyrar, Rúnar Sigurpálsson, varð þriðji með 7,5 vinninga.

Um næstu helgi fer fram fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga í Reykjavík og að venju teflir Skákfélag Akureyrar þar fram nokkrum skáksveitum.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00