Fara í efni
Sverrir Páll

Skák: Símon varð Akureyrarmeistari

Mikið var undir í lokaumferðinni á Skákþingi Akureyrar. Jón Kristinn Þorgeirsson er fremstur á mynd en við hlið hans er Símon Þórhallsson. Þeir voru efstir og jafnir þegar lokaumferðin hófst en Símon stóð síðan uppi sem Akureyrarmeistari. Mynd: Áskell Örn Kárason.

Skákþingi Akureyrar lauk síðastliðinn sunnudag þegar sjöunda og síðasta umferð mótsins var tefld. Símon Þórhallsson stóð uppi sem sigurvegari en hann hlaut 6 vinninga af 7 mögulegum. Þetta er í fyrsta sinn sem Símon hampar Akureyrarmeistaratitlinum.

Fyrir lokaumferðina voru þeir félagar Símon og Jón Kristinn Þorgeirsson efstir og jafnir með 5 vinninga en Jón náði Símoni að vinningum með sigri í innbyrðisskák þeirra í 6. umferð. Í lokaumferðinni lagði Símon Rúnar Ísleifsson að velli en Jón Kristinn mátti játa sig sigraðan gegn Áskeli Erni Kárasyni eftir miklar sviptingar í óljósri stöðu.

Eins og áður sagði hlaut Símon 6 vinninga, vann allar aðrar skákir en gegn Jóni Kristni. Jón Kristinn, Áskell og Markús Orri Óskarsson, Akureyrarmeistari síðustu tveggja ára, komu næstir með 5 vinninga og Smári Ólafsson fékk 4,5 vinninga.

Efstur yngri iðkenda – barna á grunnskólaaldri –  varð Valur Darri Ásgrímsson með 4 vinninga. Alls voru 10 af 22 keppendum mótsins úr hópi yngri iðkendanna en Akureyrameistarar í yngri flokkum verða hinsvegar ekki krýndir fyrr en eftir meistaramót hinna yngri um miðjan mars.

Nánar má lesa um úrslit mótsins í frétt á vefsíðu Skákfélags Akureyrar.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00