Fara í efni
Sverrir Páll

Akureyrarmóti yngri flokka í skák lokið

Keppendur á Akureyrarmóti yngri flokka í skák. Fremri röð f.v.: Egill Eggertsson, Björgvin Elvar Björgvinsson, Frosti Snær Ingason, Galaad Eyvindur Lanckman, Elías Sæmundur Steinarsson, Dominik Wielgus. Sitjandi í sófanum, f.v.: Harpa Hrafney Karlsdóttir, Nökkvi Már Valsson, Sigþór Árni Sigurgeirsson, Viacheslav Kramarenko. Mynd: Skákfélag Akureyrar/Áskell Örn Kárason.

Nýlega lauk Akureyrarmóti yngri flokka í skák. Sigþór Árni Sigurgeirsson bar sigur úr býtum í unglingaflokki og Nökkvi Már Valsson varð hlutskarpastur í barnaflokki, líkt og á síðasta ári.

Alls mættu tíu keppendur til leiks, sem er óvenju fámennt eftir því sem segir í frétt á vef Skákfélags Akureyrar (SA), en nokkra efnilega skákmenn vantaði að þessu sinni. Allir tefldu við alla en fjórir keppendur börðust um sigurinn í unglingaflokki (fædd 2010-2013) og sex í barnaflokki (fædd 2014 og síðar). 

Framfarirnar hjá unga fólkinu eru vel merkjanlegar og keppnisreynslan sem fæst með þátttöku í mótum er mikilvæg. Mynd: Skákfélag Akureyrar/Áskell Örn Kárason.

Sigþór Árni fékk 8,5 vinninga úr skákunum níu og vann öruggan sigur í unglingaflokknum. Harpa Hrafney Karlsdóttir og Viacheslav Kramarenko komu næst með 7 vinninga hvort. Viacheslav hreppti annað sætið vegna sigurs í innbyrðisviðureign þeirra.

Nökkvi Már vann sömuleiðis öruggan sigur í barnaflokki, hlaut 7,5 vinninga af 9. Galaad Lanckman hreppti silfrið með 4 vinninga og Frosti Snær Ingason hafnaði í 3. sæti með 3 vinninga. Dominik W. Wielgus hlaut einnig 3 vinninga en Frosti Snær hafði betur í innbyrðisviðureign þeirra.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00