Fara í efni
Sverrir Páll

Jóna Hammer færir Skólasjóði MA gjöf

Jóna Hammer með bókina sem hún skrifaði um uppvaxtarár sín á Akureyri. Mynd: ma.is.

Samstaða og tengsl fyrrverandi nemenda Menntaskólans á Akureyri við skólann eru afar sterk, eins og fjölmennar afmælishátíðir og regluleg árgangamót  í tengslum við 17. júní bera vitni um. Fjölmargir velunnarar hafa gegnum árin stutt við skólann og lagt til fjármuni í Uglusjóð og Skólasjóð. Nýverið bættist í þann hóp þegar skólanum barst vegleg gjöf frá Jónu Hammer, stúdent frá MA 1962, sem ætluð er í Skólasjóð skólans. Fyrirhuguð ráðstöfun fjárins mun beinast að því að bæta aðstöðu fyrir nemendur í skólanum, að því er fram kemur í frétt á vef skólans.

Jóna Hammer hefur átt langan og fjölbreyttan starfsferil á fræðasviðinu. Hún lauk doktorsprófi í enskum bókmenntum 19. aldar og skrifaði doktorsritgerð um eftirlíkingar á íslenskum fornsögum í verkum Rider Haggard. Hún hefur jafnframt þýtt fjölda íslenskra þjóðsagna á ensku og sent frá sér bókina Memoirs of an Icelandic Bookworm, þar sem hún rifjar upp æskuár á Akureyri og setur þjóðsögurnar í samhengi við heim bókelskra barna. Á löngum kennsluferli sínum starfaði hún við Duquesne University í Pittsburgh, þar sem hún kenndi ensku og stýrði enskudeild fyrir erlenda námsmenn, auk þess að kenna íslensku við University of Pittsburgh um tíma.

Í fréttinni eru Jónu færðar sérstakar þakkir frá skólanum fyrir hlýhug hennar og rausnarlega gjöf.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00