Fara í efni
Sverrir Páll

Gatnamót Skarðshlíðar og Smárahlíðar lokuð

Gatnamót Smárahlíðar og Skarðshlíðar verða lokuð frá kl. 9 í dag vegna framkvæmda. Lokunin hefur áhrif á akstur strætisvagna.

Í frétt á vef Akureyrarbæjar segir að lokað verði fyrir umferð um gatnamótin á meðan á framkvæmdum stendur, en þar er einnig tekið fram að lokað verði kl. 9-13 í dag. Skarðshlíð verður lokuð frá Lithluhlíð að Fosshlíð, nema fyrir íbúa Smárahlíðar.

Eftirfarandir breytingar verða á akstri strætisvagna vegna lokunarinnar, samkvæmt tilkynningu á Facebook-síðu SVA:

  • Leiðir 5 og 6 aka um Hörgárbraut og Hlíðarbraut í stað Undirhlíðar, Skarðshlíðar og Smárahlíðar.
    - Biðstöðvar í Smárahlíð, Skarðshlíð við Bogann og Skarðshlíð við Undirhlíð óvirkar, en vagnarnir stöðva þess í stað á biðstöðvum við Hörgárbraut og Hlíðarbraut.
  • Leið 3 ekur suður Hlíðarbraut og niður Fosshlíð í stað Smárahlíðar.
    - Biðstöð í Smárahlíð óvirk.

Framkvæmdirnar felast í gerð upphækkaðra gatnamóta Skarðshlíðar og Smárahlíðar og hefjast í dag. Markmið framkvæmdanna er að draga úr umferðarhraða og auka umferðaröryggi á svæðinu, að því er fram kemur á vef bæjarins.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00