Fara í efni
Sverrir Páll

Framkvæmdir hefjast við jöfnunarstöð strætó

Framkvæmdir við nýja jöfnunarstöð fyrir Strætisvagna Akureyrar eru að hefjast við Borgarbraut, norðan verslunarmiðstöðvarinnar Glerártorgs. Þar verður meðal annars biðskýli, aðstaða fyrir vagnstjóra, tæknirými og almenningssalerni. 

Á svæðinu verður gert ráð fyrir aðstöðu fyrir þrjá innanbæjarstrætisvagna og tvo til þrjá landsbyggðarvagna, að því er fram kemur á vef Akureyrarbæjar.

Samhliða hefjast framkvæmdir við nýja göngubrú yfir Glerá, rétt við jöfnunarstöðina, um 50 metrum ofan við núverandi vegbrú á Hörgárbraut. „Einnig verður lagður göngustígur frá stöðinni að Gefjunarstíflu, þar sem verða tjarnir og leiksvæði í fallegu umhverfi,“ segir í tilkynningunni. „Með tilkomu brúarinnar og nýrra gönguleiða batnar aðgengi verulega milli Hlíðahverfis og verslunar- og þjónustusvæðis við Glerártorg. Ný gangbraut með ljósastýringu verður við norðurinngang Glerártorgs og tengist hún beint við göngubrúna.“

„Með þessum framkvæmdum er verið að styrkja tengingar á svæðinu og bæta aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur,“ segir Höskuldur R. Höskuldsson, verkefnastjóri nýframkvæmda hjá umhverfis- og mannvirkjasviði.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki um mitt sumar 2027.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00