Fara í efni
Sverrir Páll

Bærinn verður að marka stefnu í húsnæðismálum

„Forgangs markmið þarf að vera að tryggja nægilegt, hagkvæmt og aðgengilegt húsnæði fyrir alla íbúa Akureyrar – með sérstakri áherslu á 60ára+ – þar sem bæjarfélagið stuðlar að hagkvæmri uppbyggingu og rekstri í höndum neytenda sjálfra,“ segir Benedikt Sigurðarson m.a. í seinni hluta greinar um húsnæðismál sem akureyri.net birtir í dag. Fyrri hluti greinarinnar birtist í gær – smellið hér til að sjá hana.

Hann heldur áfram:

Þar munu stærri og smærri húsnæðissamvinnufélög og sjálfseignarfélög þurfa að vera meginrekstraraðilar bæði:

  • Búseturéttaríbúða/hlutdeildareigna
  • Leiguíbúða/leiguréttareigna – með eða án hlutdeildarstuðnings/stofnframlags
  • Öryggis-/þjónustuíbúða

Heildarskipulag þarf að byggjast á langtímahugsun

  • Samfélagsleg ábyrgð og jafnræði allra
  • Fjölbreytni húsnæðisforma - og val um íbúðagerðir (ekki bara þvingað)
  • Sjálfstæði og lífsgæði íbúa – með virðingu fyrir frumkvæði og virkni einstaklinga
  • Samspil húsnæðis og daglegs lífs/ ekki bara skipulagðs félagslífs

Benedikt, sem er fyrrverandi skólastjóri og fv. framkvæmdastjóri Búfestis hsf., hefur mikið skrifað um húsnæðismál í gegnum tíðina, og greinar hans m.a. birst hér á akureyri.net. Hann lét útbúa bæklinginn AKUREYRI - ALLA DAGA. Húsnæðismál á kosningavori 2026 með sérstakri áherslu á 60 ára + sem hann færði öllum framboðunum á fundi þeirra hjá Félagi eldri borgara á Akureyri í vikunni og skoraði á þau að taka tillögur hans með í meirihlutaviðræður að kosningum loknum.

  • Grein Benedikts í dag:

Húsnæðismál 60 ára+ á Akureyri 2026-2036

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00