Bæjarslagir og barátta á öllum vígstöðvum
Viðburðarík vika er fram undan hjá akureyrskum liðum, meðal annars bæjarslagir bæði í handbolta og fótbolta. KA og Þór mætast í Olísdeild karla í handbolta á miðvikudag og í Bestu deild karla í fótbolta á laugardag. Sameiginlegu liðin, KA/Þór og Þór/KA verða bæði í eldlínunni á laugardag og sömuleiðis karlalið SA í íshokkí sem hefur leik í Toppdeildinni á laugardag. Á miðvikudag er á dagskrá fyrri leikur 2. flokks Þórs í knattspyrnu gegn Zalgiris í UEFA Youth League, eða ungmennadeild Knattspyrnusasmbands Evrópu.
- Fyrri leikur Þórs, 2. flokks karla, í Ungmennadeild UEFA er á dagskrá á miðvikudag. Leikurinn er í 1. umferð keppninnar og mætast liðin tvisvar. Seinni leikurinn verður í Vilníus í Litháen 14. október. Sigurlið úr þessum tveimur viðureignum mætir írska liðinu St. Patricks Athletics.
- Karlalið Akureyrar í handboltanum mætast í KA-heimilinu á miðvikudagskvöld, í þriðju umferð Olísdeildarinnar. KA hefur unnið báða leiki sína til þessa og er í toppsætinu. Þór tapaði fyrsta leiknum, en vann HK á heimavelli í annarri umferð. Fjallað verður sérstaklega um bæjarslaginn í annarri grein í aðdraganda leiksins.
- KA/Þór sækir ÍR heim á laugardag í þriðju umferð Olísdeildar kvenna í handbolta. Fyrstu tveir leikirnir hafa tapast og hlýtur að styttast í fyrsta sigurinn.
- Þór/KA á fram undan þriggja leikja baráttu upp á áframhaldandi sæti í Bestu deild kvenna í fótbolta. Fjögur neðstu liðin, Fram, Valur, Víkingur og Þór/KA, hefja lokakaflann um komandi helgi. Þór/KA sækir Val heim að Hlíðarenda í fyrsta leik.
- Karlalið SA í íshokkí skautar af stað í Toppdeildinni á laugardag þegar liðið sækir Fjölni heim á skautasvellið í Egilshöllinni í Reykjavík. Fjallað verður sérstaklega um veturinn fram undan, breytingar á leikmannahópnum og fleira í aðdraganda leiksins.
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER - fótbolti, handbolti
Með því að vinna Íslandsmeistaratitil í 2. flokki karla í fyrra ávann 2. flokkur Þórs sér rétt til þáttöku í Ungmennadeild UEFA. Fyrri leikur liðsins í 1. umferð keppninnar er heimaleikur gegn FK Žalgiris frá Litháen á miðvikudag.
- Fótbolti
Ungmennadeild UEFA, 1. umferð
Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras á Ásnum) kl. 16
Þór - FK Žalgiris
Bæjarslagur í handbolta á dagskrá á miðvikudagskvöld.
- Handbolti
Olísdeild karla, 3. umferð
KA-heimilið kl. 19
KA - Þór
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER - handbolti, fótbolti, íshokkí
Þriðji leikur KA/Þórs í Olísdeild kvenna á dagskrá á laugardag og vonast eftir fyrsta sigrinum á leiktíðinni.
- Handbolti
Olísdeild kvenna, 3. umferð
Skógarsel í Breiðholti kl. 15
ÍR - KA/Þór
Fjögur lið berjast um áframhaldandi veru í Bestu deild kvenna í fótbolta. Tvö þeirra fá sæti, tvö falla niður um deild. Að loknum 18 umferðum og fyrir þennan þriggja umferða lokakafla er Fram með 22 stig, Valur 20, Víkingur 20 og Þór/KA 19. Níu gríðarlega mikilvæg stig í boði á lokakaflanum.
- Fótbolti
Besta deild kvenna, neðri hluti
Valsvöllur (N1 völlurinn að Hlíðarenda) kl. 16
Valur - Þór/KA
SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí, hefur leik á Íslandsmótinu á laugardag. Þrisvar á undanförnum fjórum árum hefur lið SA mátt horfa á eftir Íslandsbikarnum í Laugardalinn til Skautafélags Akureyrar. Nýr þjálfari er mættur til leiks og að sjálfsögðu stefnt að því að vinna titla.
- Íshokkí
Toppdeild karla
Egilshöll kl. 16:45
Fjölnir - SA
„Flóðljósaleikur“ á dagskrá á KA-vellinum á laugardagskvöldi, bæjarslagur sem er annað og meira en bæjarslagur því bæði lið eiga í mikilli og spennandi baráttu um að halda sér í Bestu deildinni.
- Fótbolti
Besta deild karla, neðri hluti
KA-völlur (Greifavöllurinn) kl. 19:30
KA - Þór