Fara í efni
KA

Gullmark Sunnu í framlengdum leik

Sunna Björgvinsdóttir tryggði SA aukastigið með marki þegar tæpar sjö sekúndur voru eftir af framlengingu í leik liðsins gegn SR í dag. Mynd: Skautafélag Akureyrar.

Kvennalið Skautafélags Akureyrar sigraði lið Skautafélags Reykjavíkur í framlengdum spennuleik í Toppdeild kvenna í íshokkí í Skautahöllinni á Akureyri í gær. Lokatölur 4-3. Sunna Björgvinsdóttir skoraði sigurmarkið þegar sex sekúndur voru eftir af framlengingunni. 

Silvía Rán Björgvinsdóttir náði forystunni fyrir SA eftir rúmlega tólf mínútna leik, lék þá skemmtilega framhjá varnarmönnum SR. Tæpum fjórum mínútum síðar jafnaði Berglind Rós Leifsdóttir fyrir SR eftir sendingu fram þar sem hún komst ein inn fyrir vörn SA. Jafnt að lokinni fyrstu lotunni.

Guðrún Ásta Valentine náði forystunni snemma í annarri lotunni eftir stoðsendingu frá Sunnu Björgvinsdóttur. Guðrún Ásta kom SA í 3-1 fimm mínútum síðar, aftur eftir stoðsendingu frá Sunnu. SR-ingar létu það ekki slá sig út af laginu og aðeins 16 sekúndum eftir að leikur hófst að nýju minnkaði Bríet María Friðjónsdóttir muninn og á lokamínútu annarrar lotu jafnaði Ylfa Kristín Bjarnadóttir í 3-3. Hnífjafnt fyrir síðustu lotuna.

Rétt eftir miðja þriðju lotuna náði SA aftur forystunni með marki frá Herborgu Rut Geirsdóttur, en innan við mínútu síðar slapp Gunnborg Petra Jóhannsdóttir ein inn fyrir varnarmenn SA og jafnaði í 4-4. Lokamínútur þriðju lotunnar voru spennandi því bæði lið fengu refsingar, fyrst ein úr liði SR og svo tvær úr liði SA þannig að á lokakaflanum spiluðu SR-ingar fjórar á móti þremur og svo fimm á móti þremur, en náðu ekki að nýta sér þann liðsmun. Þar kom Shawlee Gaudreault í marki SA við sögu eins og svo oft áður.

SR-ingar hófu svo framlenginuna einni fleiri, en allt kom fyrir ekki. Framlengingin var æsispennandi, bæði lið með góð færi því leikurinn opnaðist eftir að refsingum var lokið og bæði lið spiluðu með þrjá útileikmenn, eins og jafnan er gert í framlengingu. SA-konur voru ágengari upp við mark gestanna, héldu pökknum meira og minna síðustu mínútuna, en Julianna Thomson stóð í vegi þeirra allt þar til 6,6 sekúndur voru eftir af framlenginunni þegar Sunna Björgvinsdóttir kom pökknum loks í netið og tryggði SA sigur og aukastigið, en þegar jafnt er að loknum þremur lotum fær hvort lið eitt stig og framlengingin er því upp á eitt stig að auki.

SA - SR 5-4 (1-1, 2-2, 1-1, 1-0)

Helstu tölur úr leiknum:

SA

Mörk/stoðsendingar: Guðrún Ásta Valentine 2/0, Sunna Björgvinsdóttir 1/3, Silvía Rán Björgvinsdóttir 1/2, Herborg Rut Geirsdóttir 1/0,  Berglind Huld Ríkarðsdóttir 0/1, Sólrún Assa Arnardóttir 0/1, Magdalena Sulova 0/1. 
Varin skot: Shawlee Gaudreault 14 af 18 (77,78%).
Refsingar: 6 mínútur.

SR

Mörk/stoðsendingar: Gunnborg Petra Jóhannsdóttir 1/2, Bríet María Friðjónsdóttir 1/1, Berglind Rós Leifsdóttir 1/0, Ylfa Kristín Bjarnadóttir 1/0. 
Varin skot: Julianna Thomson 35 af 40 (87,5%).
Refsingar: 2 mínútur.

Leikskýrslan

Toppdeildin - staða

Næst:

  • Skautasvellið í Egilshöll
    Föstudagur 27. nóvember kl. 19:45
    Fjölnir - SA