Fara í efni
KA

Góð byrjun Þórsara dugði ekki gegn ÍA

Pétur Cariglia var með 100% skotnýtingu, fyrir utan vítaskotin. Hann sækir hér að körfu Skagamanna, en Gojko Sudzum og Igor Maric eru til varnar. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Góð byrjun Þórsara dugði þeim ekki gegn öflugu liði Skagamanna þegar liðin mættust í næstefstu deild Íslandsmótsins í körfubolta karla, Bæjarins beztu deildinni, í gær. Munurinn varð að lokum 14 stig, 87-101.

Þórsarar byrjuðu leikinn af krafti og hittu mjög vel úr sínum skotum, náðu 13 stiga forskoti þegar fyrsti leikhluti var rúmlega hálfnaður. Þá kveiktu Skagamenn á sér og náðu að jafna leikinn áður en fyrsta leikhluta lauk. Annar leikhluti var tiltölulega jafn lengst af, en ÍA náði sex stiga forystu á lokaspretti fyrri hálfleiksins. Einkennandi var að Skagamenn tóku miklu fleiri fráköst en Þórsarar. Það kom ekki að sök í byrjun þegar Þórsarar hittu vel.

Seinni hálfleikurinn var síðan að mestu eign Skagamanna sem náðu mest 22 stiga forskoti, en 20 stigum munaði í lok þriðja leikhlutans, 59-79. Skagamenn sigldu sigrinum síðan þægilega í höfn í fjórða leikhlutanum, en ljósi punkturinn var kannski lokakaflinn þegar bæði lið höfðu skipt atvinnumönnum sínum út af og yngri leikmenn fengu tækifæri. Segja má að unglingaflokkur Þórs hafi unnið unglingaflokk ÍA á síðustu tveimur til þremur mínútunum, þegar Þórsarar minnkuðu muninn úr 25 stigum niður í 14 stig.

Þegar upp var staðið höfðu Skagamenn tekið meira en tvö fráköst fyrir hvert eitt sem Þórsarar tóku, fráköstin 29 á móti 56. Það var þó ekki einn leikmaður sem gerði Þórsurum erfitt fyrir heldur voru það fimm leikmenn ÍA sem tóku á bilinu sjö til tíu fráköst hver. 

Jalen Green skoraði 20 stig  fyrir Þór, en Pétur Cariglia var valinn maður leiksins úr röðum Þórsara, endaði með 12 stig og 100% skotnýtingu fyrir utan vítaskotin. Í Skagaliðinu var það Gojko Sudzum sem var öflugastur, að öðrum ólöstuðum, skilaði 33 stigum og 36 punktum í framlag. Sölvi Ólason var með athyglisverða tvennu, skoraði tíu stig og gaf 12 stoðsendingar.

Þór - ÍA (24-24) (18-24) 42-48 (17-31) (28-22) 87-101

ÍA fór á topp deildarinnar með sigrinum, hefur unnið sjö leiki af átta eins og Þór Þ. og Haukar. Þórsarar eru áfram í 10. sætinu, hafa unnið tvo leiki af átta. 

Helstu tölur úr leiknum, stig/fráköst/stoðsendingar:

Þór

Jalen Green 20/4/0, Justin Andrew 17/8/2, Pétur Cariglia 12/3/3, Baldur Örn Jóhannesson 8/1/2, Hlynur Ingi Finnsson 8/1/2, Axel Arnarsson 6/4/1, Bergvin Ingi Magnússon 5/1/0, Andri Már Jóhannesson 4/2/1, Páll Nóel Hjálmarsson 3/3/0, Arngrímur Friðrik Alfreðsson 2/0/0, Smári Jónsson 2/0/0, Hjálmar Helgi Jakobsson 0/1/1.

ÍA

Gojko Sudzum 33/8/1, Þórarinn Gunnar Óskarsson 14/10/1, Allen Peter Flanigan 13/9/3, Sölvi Ólason 10/5/12, Lucien Thomas Christofis 10/8/4, Igor Maric 9/1/2, Aron Elvar Dagsson 5/7/1, Nikola Orelj 2/1/0, Eldór Frosti Halldórsson 2/0/0, Tómas Ingi Hannesson 2/0/0, Marinó Ísak Dagsson 1/2/1, Árni Kristján Rögnvaldsson 0/0/1.

Leikskýrsla og tölfræði

Staðan í deildinni

Næst:

  • Íþróttahöllin á Akureyri
    Föstudagur 27. nóvember kl. 19:15
    Þór - Selfoss