Fara í efni
KA

Blak: Tveir sigrar KA gegn Aftureldingu

Kvennalið KA í blaki vann góðan sigur gegn Aftureldingu um helgina og karlaliðið gerði slíkt hið sama. Mynd af FB-síðu KA.

Blaklið KA í kvenna- og karlaflokki fóru suður í Mosfellsbæ um helgina og mættu heimamönnum í Aftureldingu í efstu deild í blaki, Unbroken-deildunum. KA vann öruggan sigur í báðum viðureignum, 3:1 í kvennaflokki og 3:0 í karlaflokki.

Fyrirfram var búist við jafnri viðureign í leik kvennaliðanna, því bæði lið höfðu unnið fjóra leiki og aðeins tapað gegn HK. Enda voru hrinurnar jafnar og spennandi. KA vann þá fyrstu, 25:22, eftir að hafa verið með góða forystu sem Afturelding vann upp. En góður endasprettur tryggði KA sigur. Heimakonur jöfnuðu með 25:20 sigri þar sem þær skoruðu sjö síðustu stigin í hrinunni. Þriðja hrinan var sömuleiðis í járnum en KA náði að halda út og landa sigri 25:23. Sigurinn var svo í höfn með 25:21 sigri í síðustu hrinunni.

Karlaliðið vann allar hrinurnar

Karlarnir kláruðu sinn leik í þremur hrinum. Þeir voru með yfirhöndina allan tímann í þeirri fyrstu og unnu hana 25:20. Afturelding beit frá sér í þeirri næstu og leiddu hana lengst af. En í stöðunni 23:18 þeim í vil skelltu KA-menn í lás og tryggðu sér 25:23 sigur í hrinunni með því að skora sjö síðustu stigin. Eftir þetta var allur vindur úr heimamönnum og KA vann síðustu hrinuna örugglega, 25:18.