Fara í efni
Gervigreind - pistlar

VMA og Iðavöllur á meðal tilnefndra

Verkmenntaskólinn á Akureyri og verkefni sem leikskólinn Iðavöllur er aðili að eru á meðal þeirra sem tilnefnd eru til Íslensku menntaverðlaunanna.

Verkmenntaskólinn á Akureyri er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna, sem og verkefni sem leikskólinn Iðavöllur á Akureyri tekur þátt í ásamt fleiri leikskólum. Þriðja tilnefningin sem tengist Akureyri er Söngvavor, sem Tónlistarskólinn á Akureyri og leikskólar bæjarins taka þátt í.

Verkmenntaskólinn er tilnefndur í flokknum iðn- og vekrmenntir ásamt tveimur öðrum. Verkefnið sem skólinn er tilnefndur fyrir er „sjálfbær kennslustofa, nýsköpunarverkefni sem er til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt – en í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð til að fást við margs konar verkefni sem því tengjast.“ Fjallað var um þetta verkefni VMA í fréttum Rúv í vor - sjá hér.

Þrjú verkefni eru tilnefnd í flokki þróunarverkefna, þar á meðal Stilla – hæglátt skólastarf þar sem leikskólinn Iðavöllur á Akureyri er á meðal þátttakenda. Stilla „er samvinnuverkefni rannsakenda og starfsfólks í fjórum leikskólum, Aðalþingi í Kópavogi, Iðavelli á Akureyri, Rauðhóli í Reykjavík og Uglukletti í Borgarnesi, um að gefa börnunum tækifæri til að sökkva sér í leik og gefa þeim meiri tíma til að kanna hugmyndir sínar.“

Annað verkefni í sama flokki tengist einnig Akureyri. Það er Söngvavor: Samstarf um tónlistaruppeldi, málrækt og jöfn tækifæri barna. Tónlistarskólinn á Akureyri og leikskólar bæjarins eru á meðal þátttakenda í Söngvavori, samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla. Leikskólabörnin læra sönglög eftir íslensk tónskáld, heimsækja tónlistarskóla og æfa með hljómsveitum þeirra. Verkefninu lýkur með mikilli tónlistarhátíð þar sem börnin koma fram fyrir áheyrendur.

Það eru Samtök áhugafólks um skólaþróun sem standa að Íslensku menntaverðlaununum, en sérstakt viðurkenningarráð hefur umsjón með tilnefningum. Verðlaunin voru endurreist árið 2020 og verður komandi verðlaunaveiting því sú sjöunda á þessu formi. 

Allar tilnefningar má sjá í frétt á vef Skólaþróunar - sjá hér.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16