Fara í efni
Gervigreind - pistlar

Sveitahátíðin Fram í fjörð haldin á morgun

Mynd: Þorgeir Baldursson.

Sveitahátíðin Fram í fjörð verður haldin í Eyjafjarðarsveit á morgun, laugardaginn 8. ágúst. Dagskráin hefst klukkan 10 að morgni og stendur fram eftir degi, en víða um sveitina verður opnað fyrir gestum og boðið upp á allt frá náttúrugöngu og opnum görðum til uppistands, fornbílasýningar og tónleika.

Fyrsti dagskrárliðurinn er náttúruganga um Garðsárgil að vestan í boði Jóhannesar Geirs. Lagt verður af stað frá gamla bænum á Öngulsstöðum klukkan 10.

Víða verður síðan opið hús. Á Brúnum verður garður og gróðurhús til sýnis frá klukkan 11 til 16, auk þess sem kaffihús og vinnustofa verða opin og Henning Jóhannesson sýnir og selur keramik. Sandhólar opna garðinn sinn frá klukkan 11 til 15.

Á Holtseli verður sérstök ástæða til að fagna en ísbúðin þar á 20 ára afmæli. Af því tilefni verður boðið upp á afmælisköku frá hádegi til klukkan 18, auk þess sem ís, kökur og kjöt beint frá býli verða til sölu.

Freyvangur opnar dyrnar klukkan 13 og þar verður heitt á könnunni auk þess sem gamlar myndir og leikskrár verða til sýnis. Klukkan 14 og 15 verður síðan uppistand með Hannesi Bjarna og Badda.

Kvenfélagið Iðunn verður með nýsteikta ástarpunga og kleinur ásamt kaffi til sölu í anddyri Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar frá klukkan 14 til 16. Á sama tíma verður fornbílasýning við Búvélasafnið og Smámunasafnið, en söfnin sjálf verða opin frá klukkan 13 til 17.

Í Dyngjunni listhúsi verður opið frá klukkan 14 til 17 og þar geta gestir meðal annars tekið þátt í örnámskeiði í gerð vaxdúka úr bómullarefni og býflugnavaxi, sem nota má utan um matvæli í stað plasts.

Á Hælinu í Kristnesi heldur Svavar Knútur tónleika klukkan 16 í boði Hollvina Hælisins. Sýningin á Hælinu og kaffihúsið verða opin frá klukkan 13 til 17.

Dagskrána í heild má sjá hér á vefsíðu Eyjafjarðarsveitar.

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16