Fara í efni
Gervigreind - pistlar

Skógardagurinn í Kjarnaskógi í dag

Sveppafræðsla Guðríðar Gyðu vekjur jafnan mikla athygli á Skógardeginum. Þessi ungi maður var mjög áhugasamur um sveppina í fyrra. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Árlegur Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga er haldinn í dag, frá klukkan 13:00 til 16.00. Þessi vinsæla hátíð er vitaskuld í Kjarnaskógi, fjölmargir leggja ætíð leið sína þangað og í tilkynningu er vakin athygli á að takmarkaður fjöldi bílastæða sé í skóginum og mælt með að fólk nýti sér strætó – leið nr. 1930, sem er sérstaklega hugsuð fyrir viðburðinn.

„Skógardagurinn er einn af vinsælustu fjölskylduviðburðum helgarinnar og gefur gestum tækifæri til að njóta einnar fallegustu útivistarperlu Akureyrar. Hér mætast náttúra, fræðsla og skemmtun fyrir alla fjölskylduna,“ segir í tilkynningu um viðburðinn.

Á dagskrá verður meðal annars:

  • Á milli kl. 13 og 14. Svenni Þór og Regína Ósk syngja með krökkunum.
  • Á milli kl. 13 og 15. Húlladúlla sýnir listir sínar.
  • Á milli kl. 14 og 15. Blæja og Bára verða á svæðinu og taka myndir með gestum.
  • Bogfimideild Akurs kynnir starfsemi sína og býður gestum að prófa bogfimi.
  • Blæja og Bára verða á svæðinu og taka myndir með gestum.
  • Ís í boði Ísbúðarinnar.
  • Birkibandið spilar fyrir gesti og gangandi.
  • Sveppafræðsla með Guðríði Gyðu.
  • Popp og kaffi.
  • Fornbílasýning Bílaklúbbs Akureyrar á Birkimel.
  • Ávextir í boði Nettó.

  • Gestir eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka með sér teppi og njóta notalegrar stundar í skóginum.

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16