Fara í efni
Gervigreind - pistlar

Akureyrarslagur í KA-heimilinu í kvöld

Bjarni Ófeigur Valdimarsson býr sig undir að taka víti þegar Akureyrarfélögin mættust í KA-heimilinu í fyrravetur. Nicola Radovanovic stendur í marki Þórs. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Fyrri Akureyrarslagur vetrarins í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, Olísdeildinni, fer fram í kvöld þegar KA og Þór mætast í KA-heimilinu. Viðureignin hefst klukkan 19. Tveimur umferðum er lokið, KA-menn hafa unnið báða leikina – gegn HK og Víkingi – og eru því með fjögur stig en Þórsarar eru með tvö stig eftir tap gegn Fram í fyrstu umferð og sigur á HK.

Frábær stemning skapaðist í bæði skiptin sem Akureyrarliðin mættust í Olísdeildinni í fyrravetur; KA vann fyrri leikinn á heimavelli með fjögurra marka mun í nóvember en jafntefli varð í heimaleik Þórs í Höllinni í lokaumferð deildarinnar. Gera verður ráð fyrir að bekkurinn verði þétt setinn í KA-heimilinu í kvöld og stemningin  ekki síðri en síðasta vetur.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 3. umferð
    KA-heimilið kl. 19
    KA - Þór

Bæði félög hafa tilkynnt um „upphitun“ stuðningsmanna fyrir leikinn.

  • „Upphitun hefst í kjallaraklúbbi KA kl. 17:00 og svo byrjum við að hleypa inn í salinn kl. 18:00. Við mælum með að mæta snemma til að ná góðu sæti en reikna má með troðfullri stúku,“ segir á Facebook síðu KA í morgun.
  • Þar segir einnig: „Hvetjum ykkur til að geyma bílinn heima ef það er hægt, annars verða Þingvallastræti og Dalsbraut þrengd til að fjölga bílastæðum á svæðinu. Einnig er hægt að leggja við Lundarskóla.“
  • Örfáir miðar voru eftir í KA-heimilinu í morgun. 
  • Þórsarar ætla að hita upp í Höllinni frá kl. 16:30 þar sem þjálfarinn Daniel Birkelund svarar spurningum. Hamborgarar og drykkir verða seldir  í Höllinni.
  • „Miðafjöldi okkar hefur aukist svo nokkrir miðar á leikinn verða til sölu í Höllinni í dag, fyrstur kemur, fyrstur fær!“ sagði á Facebook síðu Þórs í morgun.

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16