Þórsarar gerðu þrjú mörk en töpuðu
Eftir mikla rigningu á Akureyri framan af degi hélt áfram að rigna á VÍS-velli Þórs seinni partinn, þó aðallega mörkum! Þórsarar mættu þá liði Zalgiris frá Litháen í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar ungmenna í knattspyrnu – UEFA Youth League, mörkin urðu sjö og Þórsarar töpuðu naumlega, 4:3.
Þór varð Íslandsmeistari í 2. flokki í fyrra og Zalgiris vann sambærilega deild heima fyrir.
Vakaris Berenta braut ísinn með marki fyrir gestina strax á fyrstu mínútu leiksins og Dovydas Eidukaitis kom þeim í 2:0 á 24. mín. Óliver Sesar Bjarnason minnkaði muninn fyrir Þór aðeins tveimur mín. síðar en Berenta bætti við marki fyrir Zalgiris áður en fyrri hálfleikurinn var úti. Staðan 3:1 fyrir Litháana að honum loknum.
Stefán Björn Svavarsson, sem kom inná hjá Þór á 61. mínútu, gerði annað mark liðsins á 74. mín. og annar varamaður, Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson, jafnaði 3:3 tveimur mín. síðar, þegar liðnar voru tæpar 10 mínútur síðan honum var skipt inná. Þá ríkti gleði á og við gervigrasvöllinn á Ásnum en hún var því miður skammvinn í það skipti; áðurnefndur Berenta var enn einu sinni á ferðinni og gerði fjórða mark gestanna, og sitt þriðja, aðeins mínútu eftir að Þórsarar jöfnuðu.
Liðin mætast á ný í Litháen eftir tæpan mánuð, 14. október.
Byrjunarlið Þórs er á myndinni. Aftari röð frá vinstri: Peter Ingi Helgason, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Lucas Vieira Thomas, Hákon Kári Jónsson, Kári Jónsson og Kjartan Ingi Friðriksson. Fremri röð frá vinstri: Jósef Orri Axelsson, Natan Dagur Fjalarsson, Óliver Sesar Bjarnason, Smári Signar Viðarsson og Sverrir Páll Ingason.
Leikskýrslan á vef Knattspyrnusambands Evrópu
Meira seinna
Laxness í norska Amaróhúsinu
Að lesa um afa
Innflytjendur, samningar og staðreyndir
Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“