Akureyrarslagur í KA-heimilinu í kvöld
Fyrri Akureyrarslagur vetrarins í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, Olísdeildinni, fer fram í kvöld þegar KA og Þór mætast í KA-heimilinu. Viðureignin hefst klukkan 19. Tveimur umferðum er lokið, KA-menn hafa unnið báða leikina – gegn HK og Víkingi – og eru því með fjögur stig en Þórsarar eru með tvö stig eftir tap gegn Fram í fyrstu umferð og sigur á HK.
Frábær stemning skapaðist í bæði skiptin sem Akureyrarliðin mættust í Olísdeildinni í fyrravetur; KA vann fyrri leikinn á heimavelli með fjögurra marka mun í nóvember en jafntefli varð í heimaleik Þórs í Höllinni í lokaumferð deildarinnar. Gera verður ráð fyrir að bekkurinn verði þétt setinn í KA-heimilinu í kvöld og stemningin ekki síðri en síðasta vetur.
- Handbolti
Olísdeild karla, 3. umferð
KA-heimilið kl. 19
KA - Þór
Bæði félög hafa tilkynnt um „upphitun“ stuðningsmanna fyrir leikinn.
- „Upphitun hefst í kjallaraklúbbi KA kl. 17:00 og svo byrjum við að hleypa inn í salinn kl. 18:00. Við mælum með að mæta snemma til að ná góðu sæti en reikna má með troðfullri stúku,“ segir á Facebook síðu KA í morgun.
-
Þar segir einnig: „Hvetjum ykkur til að geyma bílinn heima ef það er hægt, annars verða Þingvallastræti og Dalsbraut þrengd til að fjölga bílastæðum á svæðinu. Einnig er hægt að leggja við Lundarskóla.“
-
Örfáir miðar voru eftir í KA-heimilinu í morgun.
- Þórsarar ætla að hita upp í Höllinni frá kl. 16:30 þar sem þjálfarinn Daniel Birkelund svarar spurningum. Hamborgarar og drykkir verða seldir í Höllinni.
-
„Miðafjöldi okkar hefur aukist svo nokkrir miðar á leikinn verða til sölu í Höllinni í dag, fyrstur kemur, fyrstur fær!“ sagði á Facebook síðu Þórs í morgun.
Laxness í norska Amaróhúsinu
Að lesa um afa
Innflytjendur, samningar og staðreyndir
Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“