Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Stofna félagasamtök um björgun Kristnesspítala

Frá samstöðutónleikunum sem haldnir voru við Kristnesspítala í sumar. Mynd: María Pálsdóttir.

Félagasamtökin Björgum Kristnesspítala verða stofnuð næsta sunnudag, 1. nóvember, á 99 ára afmæli Kristneshælis í Eyjafirði. Stofnfundurinn fer fram á Hælinu, setri um sögu berklanna, klukkan 17.

Eins og ítrekað hefur komið fram í fréttum undanfarna mánuði er ástand húsnæðisins í Kristnesi orðið verulega bágborið og  Sjúkrahúsið á Akureyri hefur flutt endurhæfingarstarfsemi sína þaðan vegna raka- og mygluskemmda. Óvissa ríkir um framtíð hússins og hvort endurhæfing geti aftur farið þar fram. 

Aðstandendur nýju samtakanna vilja leggja sitt af mörkum til að tryggja að húsið verði gert upp og endurhæfing haldi áfram á staðnum, sem býr yfir ýmiss konar sérstöðu sem hentar vel fyrir endurhæfingarstarfsemi. Þeir benda meðal annars á mikilvægi umhverfisins, skóginn ofan við spítalann og sérhannaða endurhæfingarsundlaug innanhúss.

Markmið samtakanna er að þrýsta á stjórnvöld um áframhaldandi endurhæfingu á Kristnesi og hefja söfnun fjár til endurbóta á húsnæðinu.

Stofnfundurinn hefst með varðeldi og heitu kakói fyrir utan Hælið. Að því loknu verður farið yfir samþykktir félagsins og kosið í stjórn. Öll áhugasöm eru velkomin.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45