Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Freyvangsleikhúsið með nýjan gamanleik

Gamanleikritið Útsynningur eftir Hjálmar Arinbjarnarson gerist í búningsklefa hjá áhugamannaleikfélagi úti á landi.

Hvað gerist í búningsklefanum þegar leikararnir eru ekki á sviðinu? Það er einmitt það sem áhorfendur fá að sjá í nýju verki Freyvangsleikhússins, Útsynningi, sem frumsýnt verður 9. október. Miðasala á þetta nýja verk hefst í dag.

Útsynningur er frumsaminn gamanleikur eftir Hjálmar Arinbjarnarson og er þetta fyrsta leikrit hans í fullri lengd sem sett er á svið. Hjálmar hefur þó um árabil skrifað styttri verk og hefur einnig tekið virkan þátt í áhugaleiklist í yfir 30 ár, meðal annars hjá Freyvangsleikhúsinu þar sem hann hefur komið að yfir tuttugu leikverkum.

Leikstjóri er Jóhanna S. Ingólfsdóttir. Þetta er fyrsta verk hennar í fullri lengd sem leikstjóri, en hún hefur undanfarin fjögur ár skrifað og leikstýrt barnaverkum Freyvangsleikhússins fyrir jólin.

Í Útsynningi fá áhorfendur ekki að fylgjast með leikritinu sem hópurinn er að sýna, heldur því sem gerist baksviðs. Verkið gerist í rauntíma og eingöngu í búningsklefanum hjá áhugaleikfélagi úti á landi þar sem verið er að setja upp Cloud Nine eftir Caryl Churchill.

Útsynningur Freyvangsleikhússins verður frumsýndur 9. október.

Þar má búast við ýmsu. Mæta allir leikararnir á réttum tíma þegar kallað er á þá? Hver sér um að útvega meiri klósettpappír? Hvað er eiginlega málið með Geirmund húsvörð? Og hvað gerist þegar hópur ólíkra einstaklinga þarf að deila litlu rými, takast á við alls kyns vandamál og halda samt áfram að vinna saman?

Í tilkynningu frá Freyvangsleikhúsinu segir að gleði, rifrildi, vinátta og ástir verði hluti af lífinu í búningsklefanum, ásamt drasli, hávaða, misgóðu skipulagi og misgóðri lykt. Dýnamíkin getur svo breyst talsvert þegar utanaðkomandi aðili mætir á svæðið og vill fara að stjórna því hvernig hlutirnir eiga að ganga fyrir sig.

  • Sýningar á Útsynningi verða eingöngu í október og frumsýning verður 9. október eins og áður sagði.
  • Miðasala er á tix.is og hefst í hádeginu í dag, föstudag.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45