Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Nýtt nám í kennslu íslensku sem 2. máls

Háskólaráð Háskólans á Akureyri (HA) samþykkti á fundi sínum 26. september sl. að setja á laggirnar nýtt nám í kennslu íslensku sem annars máls við kennaradeild háskólans. Náminu er ætlað að mæta vaxandi þörf fyrir sérhæfingu kennara í íslenskum skólum þar sem nemendum með annað móðurmál en íslensku hefur fjölgað jafnt og þétt.

Á vefsíðu HA kemur fram að hlutfall grunnskólanemenda með annað móðurmál en íslensku meira en tvöfaldaðist á árunum 2013-2023, úr 6,5% í 15,5%, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Í fréttinni segir að rannsóknir bendi til þess að efla þurfi stuðning við námslegar og félagslegar þarfir fjöltyngdra nemenda. Jafnframt sé þörf á aukinni áherslu á fjöltyngi og kennslu íslensku sem annars máls í kennaramenntun.

Kennarar kalla eftir aukinni sérhæfingu

„Kennarar hafa kallað eftir fleiri tækifærum til að sérhæfa sig í kennslu íslensku sem annars máls,“ segir Tom Barry, sviðsforseti hug- og félagsvísindasviðs HA í fréttinni á vef skólans. Hann segir námið einnig samræmast stefnu háskólans til ársins 2030, þar sem lögð sé áhersla á framsækið nám og nýsköpun í takt við þarfir samfélagsins. „Við viljum efla kennara til að styðja við nám og þátttöku fjöltyngdra nemenda og byggjum þar á öflugri sérþekkingu innan háskólans,“ segir Tom.

Innan kennaradeildar HA er víðtæk þekking á fjöltyngi, máltöku, læsi og tungumálakennslu. Þá verður auglýst sérstök staða innan deildarinnar til að sinna kennslunni.

Diplóma eða meistarapróf

Námið var þróað í samstarfi við lykilaðila í kennslu íslensku sem annars máls í leik-, grunn- og framhaldsskólum, auk Miðstöðvar skólaþróunar við HA. Boðið verður upp á þrjú ný sérnámskeið um kennslu íslensku sem annars máls, en námsleiðin byggir jafnframt á námskeiðum sem þegar eru kennd við kennaradeildina. Starfandi kennarar geta lokið 60 eininga viðbótardiplómu á einu ári eða 120 eininga meistaraprófi á tveimur árum. Í meistaranáminu dýpka nemendur sérhæfingu sína enn frekar með meistararitgerð.

Með nýju námsleiðinni vill Háskólinn á Akureyri bregðast við breyttum þörfum íslenskra skóla og styrkja kennara í að styðja við nám og þátttöku nemenda með ólíkan tungumálabakgrunn.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45