Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Nýtt nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf

Nýtt þriggja ára bakkalárnám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf verður sett á laggirnar við Háskólann á Akureyri (HA). Áætlað er að fyrsti nemendahópurinn hefji nám haustið 2027 og að í honum verði um 15 manns. Námið verður kennt við hjúkrunarfræðideild háskólans og er ætlað að bregðast við aukinni þörf fyrir sérhæft fagfólk á sviði fíknivanda. 

Háskólaráð HA samþykkti á fundi sínum 26. september sl. að setja námið á laggirnar. Að því er fram kemur í frétt á vefsíðu HA er um að ræða 180 ECTS-eininga nám, hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Hingað til hefur Símenntun Háskólans á Akureyri boðið upp á umfangsmikil námskeið á þessu sviði. 

Áhersla á klíníska færni og þverfaglegt samstarf

Námið á að búa nemendur undir störf við forvarnir, ráðgjöf, meðferð og endurhæfingu fólks með fíknivanda, auk þess að efla stuðning við fjölskyldur þess. Áhersla verður lögð á klíníska þekkingu og færni, gagnreyndar aðferðir, fagmennsku, rannsóknarlæsi og þverfaglega teymisvinnu. Námið verður að mestu leyti kennt í fjarnámi, en reglulegar staðlotur verða við háskólann. Þá verður klínískt nám á viðeigandi vettvangi hluti af náminu.

Námsleiðin verður vistuð við hjúkrunarfræðideild á heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði HA. Hún mun að stórum hluta byggjast á námskeiðum sem þegar eru kennd við háskólann, en jafnframt verða þróuð sex ný, sérhæfð klínísk námskeið í áfengis- og vímuefnaráðgjöf.

Með nýju námsleiðinni vill Háskólinn á Akureyri styrkja menntun og fagmennsku á sviði fíknivanda og skapa skýrari náms- og starfsleið fyrir framtíðarráðgjafa. Jafnframt er markmiðið að efla heilbrigðis- og félagsþjónustu um land allt og bæta möguleika fólks með fíknivanda og fjölskyldna þess til að fá heildræna og gagnreynda þjónustu.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45