Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Gefa „framlínufólkinu“ alls 2000 páskaegg

Myndir af vef Sjúkrahússins á Akureyri
Sjúkrahúsinu á Akureyri bárust í gær um 1.100 páskaegg að gjöf, handa starfsfólki stofnunarinnar og sjúklingum. Það er Smáríkið, netverslun með áfengi, sem gefur.
 
Axel Birgisson, rekstrarstjóri Smáríkisins, birti myndskeið á Instagram í gær þar sem hann tilkynnti að fyrirtækið hefði keypt 2.000 páskaegg frá Nóa Síríus sem gefin yrðu „framlínufólkinu“ – starfsmönnum sjúkrahússins, slökkviliðsins, björgunarsveitafólki og fleirum.
 
„Í gær barst Sjúkrahúsinu á Akureyri rausnarleg gjöf frá Smáríkinu þegar um 1.100 páskaegg voru afhent til að gleðja bæði starfsfólk og skjólstæðinga yfir páskahátíðina,“ segir á Facebook síðu sjúkrahússins þar sem meðfylgjandi myndir eru birtar. Smáríkið vildi með þessu sýna stuðning við starfsemi SAk og færa smá páskagleði inn í daglegt líf þeirra sem hér starfa og dvelja. Við kunnum Smáríkinu innilega þakkir fyrir hlýhugann og óskum þeim sem og öllu starfsfólki SAk gleðilegra páska.“

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50