Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Oddfellow konur gáfu flotbúnað í sundlaug

Mynd af vef SAk

Oddfellow konur í Rebekkustúku nr.  16, Laufeyju, færðu nýverið sjúkraþjálfun á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) veglega gjöf, flotbúnað til notkunar í sundlauginni á Kristnesi.

„Með gjöfinni hefur aðstaða til flotmeðferðar tekið stórstígum framförum, en sundlaugin býr nú yfir flotbúnaði fyrir allt að tíu einstaklinga í senn. Þetta skapar ný og fjölbreytt tækifæri í endurhæfingu, bæði fyrir einstaklingsmeðferðir og samflot, þar sem áhersla er lögð á djúpslökun, líkamsvitund og andlega vellíðan,“ segir Sólveig Bennýjar og Haraldsdóttir, aðstoðarmaður sjúkraþjálfara í tilkynningu á vef SAk.

Hugmyndin að gjöfinni kviknaði þegar Ester Gestsdóttir dvaldi í endurhæfingu á Kristnesi í janúar 2026, segir í tilkynningunni.  „Hún sá þá möguleika á að efla þessa meðferð, þar sem einungis eitt sett af flotbúnaði var til staðar. Í framhaldi lagði hún hugmyndina fyrir stúku sína sem brást afar vel við.“ Það voru Ester og Ragnheiður Sveinsdóttir sem komu í Kristnes og afhentu búnaðinn við hátíðlega athöfn.

„Jafnframt er vert að nefna að Sólveig Bennýjar og Haraldsdóttir, aðstoðarmaður sjúkraþjálfara og jógakennari við deildina, hefur lokið námi í flotleiðsögn hjá Flothettunni í Reykjavík. Sú þekking mun styðja enn frekar við faglega þróun flotmeðferðar á staðnum,“ segir á vef SAk.

„Gjöfin mun nýtast fjölbreyttum hópi skjólstæðinga og styrkja bæði líkamlega og andlega endurhæfingu þeirra sem nýta sér þjónustu deildarinnar,“ er haft eftir Sólveigu Bennýjar og Haraldsdóttur.

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50