Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Beiðni Odds hafnað og Dvergaholt óbreytt

Mynd: Þorgeir Baldursson

Bæjarráð Akureyrar hafnaði í gær beiðni Odds Helga Halldórssonar, íbúa við Dvergaholt og fyrrverandi bæjarfulltrúa, þess efnis að synjun skipulagsráðs á tillögu hans um breytingu á deiliskipulagi Dvergaholts verði tekin til endurskoðunar. Oddur Helgi lagði til að deiliskipulag Holtahverfis norður og Sandgerðisbótar yrði samræmt þannig að hægt yrði að aka Dvergaholt niður á Óseyri.

Bæjarráð tók erindi Odds Helga fyrir 3. september og fól þá bæjarlögmanni, Ingu Þöll Þórgnýsdóttur, að kanna heimild til endurupptöku málsins. Á fundi bæjaráðs í gær kom fram að mat bæjarlögmanns væri að Oddur Helgi hefði ekki sýnt fram á að ákvörðun um að falla frá að gera breytingu á deiliskipulagi hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik. Beiðni um endurupptöku uppfyllti því ekki skilyrði stjórnsýslulaga.

„Bæjarráð hefur farið yfir álit bæjarlögmanns um heimild til endurupptöku málsins samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga. Að mati bæjarráðs eru ekki uppfyllt skilyrði laganna fyrir endurupptöku málsins og er erindi um endurupptöku því hafnað,“ segir í fundargerð bæjarráðs frá því í gær.

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45