Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Bæring Nói sigraði í Söngkeppni MA

Bæring Nói Dagsson (t.v.) sigraði í Söngkeppni MA 2026 og það var Níels Thibaud Girerd (t.h.), formaður dómnefndar, sem afhenti honum verðlaunin. Mynd: ma.is.

Bæring Nói Dagsson bar sigur úr býtum í árlegri Söngkeppni Menntaskólans á Akureyri sem haldin var í Kvosinni í MA í gærkvöld. Hann flutti Er alveg sjúkur í þig, sem er texti sem hann samdi ásamt vinum sínum við lagið Teenage Dirtbag eftir Wheatus – en auk þess að vinna keppnina fagnaði Bæring Nói 17 ára afmæli sínu í gær!

Íris Alma Kristjánsdóttir varð í öðru sæti með lagið Einhver og Heiðdís Pála Áskelsdóttir hreppti 3. sætið fyrir flutning sinn á laginu This is a Mans World. Að auki ákvað dómnefndin að veita Elvari Birni Ólafssyni verðlaun fyrir 4. sætið fyrir flutning sinn á laginu Easier Said Than Done.

Áhorfendur kusu vinsælasta atriðið og þar fengu Bergrós Ásta Guðmundsdóttir og Hafrún Linda Guðmundsdóttir flest atkvæði en þær fluttu lagið Elektrisk

Bæring Nói verður því fulltrúi MA í Söngkeppni framhaldsskólanna í vor.

Í frétt á vef MA kemur fram að undirbúningur keppninnar hafi staðið yfir undanfarnar vikur og öllu hafi verið tjaldað til þegar Kvosinni var breytt í tónleikahöll. Alls voru 18 atriði skráð til leiks og sá húsbandið um undirleik.

Dómnefndin var skipuð leikurum úr leiksýningunni Birtíngi, sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir innan skamms.

Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á YouTube og þar er hægt að horfa og hlusta á keppnina í heild.

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50

Hvað er gervigreind?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
04. nóvember 2023 | kl. 14:50

Mótmæli MA-inga

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
06. september 2023 | kl. 21:00