Forsetahjónin á Akureyri – MYNDIR
Halla Tómsdóttir forseti Íslands og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, vörðu gærdeginum á Akureyri. Kveikja ferðarinnar var Sjálfbærniráðstefnan, sú sjötta sem fer fram í Háskólanum á Akureyri (HA) en hjónin heimsóttu einnig Menntaskólann á Akureyri (MA), Birtu - félagsmiðstöð fólksins við Bugðusíðu, og voru síðan viðstödd næst síðustu sýningu Leikfélags Akureyrar á Birtíngi Voltaires í Samkomuhúsinu.

Sjálfbærniráðstefnan í Háskólanum á Akureyri. Frá vinstri: Kjartan Sigurðsson, fulltrúi í Umhverfisráði HA, Yvönne Höller formaður Umhverfisráðs HA, Björn Skúlason, eiginmaður forseta, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og Áslaug Ásgeirsdóttir rektor Háskólans á Akureyri. Mynd af Facebook síðu HA.
„Eftir að hafa flutt ávarp og hlýtt á opnunarfyrirlestur ráðstefnunnar tók forseti þátt í sófaspjalli um framtíð háskólamenntunar á Landsþingi Landssamtaka íslenskra stúdenta sem einnig er haldið í HA nú um helgina,“ segir á vef forsetaembættisins. Í hádeginu snæddu forsetahjón með gestum og starfsfólki Birtu og þaðan lá leiðin í Menntaskólann á Akureyri (MA) þar sem forseti ræddi við nemendur á sal.

Halla Tómsdóttir forseti Íslands ræðir við nemendur í Kvosinni, sal Menntaskólans á Akureyri. Með henni á sviðinu er Elvar Björn Ólafsson nemandi við skólann sem stýrði umræðum. Mynd af vef embættis forseta Íslands.
„Í ávarpi sínu á sjálfbærniráðstefnunni, sem Umhverfisráð HA skipuleggur, sagði forseti að áskoranir á sviði umhverfismála kölluðu á fleira en vísindalega þekkingu og tæknilegar lausnir. Hún lagði áherslu á að mannkynið þyrfti nú, líkt og jafnan þegar blikur væru á lofti, á hugrekki að halda en einnig seiglu, trú á framtíðina og þakklæti fyrir þau tækifæri sem núlifandi kynslóðir hefðu til að framkalla breytingar,“ segir á vefnum forseti.is.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands í samtali við Aðalbjörn Jóhannsson, forseta Stúdendafélags HA, og Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta LSÍ. Mynd af vef embættis forseta Íslands.
„Seiglu bar einnig á góma í sófaspjalli forseta við Aðalbjörn Jóhannsson, forseta Stúdendafélags HA, og Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta LSÍ. Þau ræddu um áhrif gervigreindar á háskólamenntun og framtíðarstarfsvettvang ungs fólks. Forseti sagði að sú kynslóð sem nú væri í háskólanámi þyrfti að búa sig undir að uppfæra menntun sína og starfshæfni með reglulegu millibili. Dýrmætasta veganestið sem þau fengju út í lífið væru seigla, sveigjanleiki og samskiptahæfni.“
„Birna Guðrún Baldursdóttir, forstöðumaður tómstundamála hjá Akureyrarbæ, tók á móti forsetahjónum í félagsmiðstöðinni Birtu. Þau hittu þar meðal annars vaska snókerspilara og pílukastara sem hvöttu Björn Skúlason, maka forseta, til að spreyta sig. Einnig heilsuðu forsetahjón upp á gesti sem nýta aðstöðu í Birtu til að sinna handavinnu og leirkeragerð.“

Birna Guðrún Baldursdóttir, forstöðumaður tómstundamála hjá Akureyrarbæ, og Halla Tómasdóttir forseti Íslands. Mynd af vef Akureyrarbæjar.
„Áður en samtalið á sal MA hófst sæmdi Karl Frímannsson skólameistari forseta gulluglu, sem er æðasta heiðursmerki skólans. Fyrsti einstaklingurinn til að hljóta þennan heiður var Kristján Eldjárn, þáverandi forseti Íslands, árið 1980. Í sófaspjalli forseta við Elvar Björn Ólafsson, nemanda á raungreina- og tæknibraut MA, beindist athyglin að þeim neikvæðu áhrifum sem samfélagsmiðlar geta haft á líðan almennings. Forseti hvatti til þess að ungt fólk setti sér mörk í notkun snjalltækja. Einnig ræddu þau Elvar Björn um gildi góðvildar og mikilvægi beinna samskipta manna á milli. “
Forsetahjón luku deginum á því að sjá uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Birtíngi Voltaires í leikgerð og leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar.

Björn Skúlason eiginmaður forseta Íslands og Hallgrímur Stefán Ingólfsson spiluðu billjard í Birtu. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Forsetahjónin ásamt leikurum og öðrum starfsmönnum Leikfélags Akureyri eftir sýningu á Birtíngi Voltaires í Samkomuhúsinu. Mynd af Facebook síðu MAk: Þorgeir Baldursson.

Björn Skúlason, eiginmaður forseta, Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar (MAk), Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og Bergur Þór Ingólfsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Mynd af Facebook síðu MAk: Þorgeir Baldursson.

Hólmfríður Hafliðadóttir leikkona og Halla Tómasdóttir forseti Íslands. Mynd af Facebook síðu MAk: Þorgeir Baldursson.

Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri (MA), og Halla Tómasdóttir forseti Íslands á gömlu heimavistinni í Gamla skóla. Mynd af Facebook síðu MA.

Björn Skúlason, eiginmaður forseta Íslands, spilar billjard félagsmiðstöðinni Birtu. Mynd af vef Akureyrarbæjar.
Að lesa um afa
Innflytjendur, samningar og staðreyndir
Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“
Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?