Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu
23. júlí 2026 | kl. 13:36
Knattspyrnumaðurinn Þorri Ingólfsson er genginn til liðs við Þór og mun leika með liðinu það sem eftir lifir tímabilsins í Bestu deildinni.
Þorri kemur til Þórs að láni frá Íslandsmeisturum Víking Reykjavík þar sem hann er uppalinn.
Þorri er fæddur árið 2009, verður 17 ára síðar í sumar. Hann hefur leikið 16 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og gert tvö mörk. Fyrsti leikur Þorra í byrjunarliði Víkings var síðastliðinn laugardag gegn Þór á Akureyri, þar sem Þórsarar unnu 2:1. Hann er fjölhæfur leikmaður en leikur oftast á vinstri kanti.